Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Ef við eigum 40 milljarða fyrir Úkraínu hljótum við að geta tryggt öryggi fólks hér heima“

Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna
Donald Trump fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna

Sá umdeildi fyrr­verandi forseti Banda­ríkjanna, Donald Trump, vill meina að sá svarti sjálfur sé með í spilunum þegar kemur að öllum skot­árásunum sem eiga sér stað á hverju ári í landinu; hann segir að hið illa og sjálf illska mannanna séu helsta orsökin fyrir því hversu margar banvænar skot­árásir eru framdar í Banda­ríkjunum; ekki skot­vopnin eða lögin sem um þau gilda.

Þetta og margt fleira kom fram í ræðu Trumps á ársfundi NRA, hagsmuna­samtaka byssu­eigenda, í ríkinu Texas í gær.

Þar hélt forsetinn fyrr­verandi Trump rúmlega klukku­stundar­langa ræðu á ársfundi NRA í Houston, aðeins örfáum dögum eftir að 18 ára piltur ruddist inn í grunn­skóla í bænum Uvalde í Texas og skaut til bana nítján börn og tvo kennara.

Trump vill fyrst og fremst auka til muna öryggis­gæslu í skólum Banda­ríkjanna:

„Það verða alltaf til djöfullegar og fársjúkar sálir sem vilja skaða saklaust fólk og sjá hið illa leggja hið góða að velli,“ sagði hann.

Öldunga­deildar­þing­maðurinn Ted Cruz hafði áður sett illskuna í aðal­hlutverk vegna voða­verkanna, en kenndi byssum alls ekki um, ekki frekar en forsetinn fyrr­verandi sem sagði meðal annars að „tilvist hins illa er sterkasta röksemdin fyrir því að vopna löghlýðna borgara. Tilvist hins illa er ekki röksemd fyrir því að afvopna löghlýðna borgara sem vita hvernig á að fara með vopnin sín, og geta þannig verndað mikinn fjölda fólks.“

Sakaði Trump pólitíska óvini sína um að nýta sér „ógeðslega glæpi geðveikra einstaklinga og þær hryllilegu þjáningar sem af þeim leiða, einungis til að vinna að því að afla öfga­fullum stefnu­málum sínum fylgi.

Einnig gagnrýndi Trump harðlega þá miklu og kostnaðar­sömu aðstoð sem Banda­ríkin veita nú Úkraínu í stríðinu við Rússa í Úkraínu; sagði að frekar ætti að verja þeim fjármunum til að tryggja öryggi Bandaríkja­manna:

„Þetta snýst um vilja og er alls ekki bara spurning um peninga; ef Banda­ríkin eiga fjörutíu milljarða dala aflögu til að senda til Úkraínu, þá hljótum við að geta tryggt öryggi fólks í sínu eigin landi,“ sagði forsetinn Trump.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall