Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Pete lét ekki sjá sig í SNL á laugardag: Talið tengjast deilunum við Kanye West

Pete Davidson og Kanye West.
Pete Davidson og Kanye West.

Pete Davidson, grínisti, leikari og fastur meðlimur í skemmtiþættinum Saturday Night Live, var fjarri góðu gamni í þættinum síðasta laugardag, 26. febrúar. Strax fóru af stað vanga­veltur um að fjarvera hans hlyti að vera vegna erja hans við rapparann Kanye West.

Deilurnar milli Kanye West og Pete Davidson hafa eflaust ekki farið framhjá þeim sem á annað borð fylgjast með slúður­miðlum vestanhafs – nú, eða Instagram-reikningi West, sem hefur farið mikinn undan­farið. Þar hefur hann birt hverja árásina á fætur annarri á Pete Davidson, ýmist í formi myndefnis eða færslna um hatur sitt á þeim síðarnefnda.

Davidson er nú í sambandi með Kim Kardashian, en hjóna­bandi hennar og West lauk snemma á síðasta ári. West hefur ekki farið leynt með að samband þeirra tveggja hafi verið upphaf þess æsings sem hann hefur viðhaft undan­farið. Hann hefur til að mynda birt skjáskot af skila­boðum milli hans og Davidson, þar sem Davidson virðist reyna að lægja öldurnar og segist vona að með tímanum geti þau öll átt góð samskipti. Kanye gaf ekki mikið út á það í færslunni og bætti um betur með því að fullyrða að Davidson fengi aldrei nokkurn tíma að hitta börn þeirra Kardashian.

Fjarvist Davidson úr þættinum hefur þó verið skýrð með þeim hætti að hann hafi verið önnum kafinn í vinnu við nýjustu kvik­myndina sína, The Home. Tíma­setningin sé því hrein tilviljun. Ekki virðast þó allir á eitt sáttir við þá skýringu og aðdáendur keppast við að koma með kenningar sem flestar snúa að deilum mannanna tveggja.

Mynd sem nýlega náð­ist af Kim Kar­dashian og Pete Davidson.

Kuldi allt frá árinu 2018 – SNL og MAGA-húfan

Þeir West og Davidson hafa þó eldað grátt silfur saman um lengra skeið, allt frá árinu 2018. West varð víst ævareiður út í Davidson eftir að sá síðarnefndi kom fram í Saturday Night Live og talaði um hegðun West í þættinum vikuna á undan, þar sem hann kom fram með MAGA-húfu og hélt ræðu til stuðnings Donald Trump. MAGA stendur einmitt fyrir Make America Great Again, sem hefur verið slagorð Trump frá því í fyrstu kosninga­baráttu hans áður en hann var kjörinn forseti Banda­ríkjanna.

„Hann byrjaði á því að segja að fólkið baksviðs hefði reynt að þjarma að honum svo hann væri ekki með hana [húfuna]. Hann var með hana alla vikuna. Enginn sagði honum að klæðast henni ekki. Ég vildi að ég hefði þjarmað að þér. Ég vildi að ég hefði bent á að, þú veist, það gæti misboðið einhverjum, eins og konunni þinni eða öllum svörtum manneskjum, nokkurn tíma,“ sagði Davidson í þættinum og var ómyrkur í máli.

Hann bætti við að Kanye West væri snillingur, en að það einskorðaðist við tónlist. Hann hefði takmarkaðan áhuga á að heyra um skoðanir West á öðru en tónlistar­tengdum hlutum. Hann kom einnig inn á geðræn vandamál West, en hann er greindur með geðhvarfa­sýki og hefur gefið það opinber­lega út að hann neiti að taka inn lyf til þess að hafa stjórn á sjúk­dómnum.

Davidson sagði það fráleitt að West væri skýlt á bak við veikindin þegar hann kæmi illa fram. Hann lagði það til að West endur­skoðaði alvarlega þá ákvörðun að taka ekki inn lyf. Davidson var sjálfur greindur með jaðar­persónu­leika­röskun árið 2017 og hefur talað opinskátt um sína baráttu og það hvernig hann vinnur í að halda jafnvægi og líða vel.

„Það að vera með geðröskun er ekki afsökun fyrir því að haga sér eins og fáviti, allt í lagi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt