Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl

Brotin voru framin á tíma­bilinu frá janúar til júní 2025

Lögreglumenn við störf
Lög­reglu­menn við störf Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir þjófnað, þrjá nytja­stuldi, umferðar­lagabrot og brot gegn lögreglu­lögum.

Brotin voru framin á tíma­bilinu frá janúar til júní 2025.

Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa brotist inn í húsnæði við Baróns­stíg í Reykjavík, ásamt öðrum, 8. janúar 2025 og stolið þaðan málverki að óþekktu verðmæti.

Í maí sama ár tók hann bifreið í Reykjavík í heimildar­leysi og ók henni þrátt fyrir að vera sviptur ökurétti. Síðar sama dag ók hann bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Í blóðsýni mældist meðal annars metamfetamín. Hann sinnti ekki ítrekuðum fyrir­mælum lögreglu um að stöðva aksturinn en lögregla hafði að lokum afskipti af honum í Engi­hjalla í Kópavogi.

Fjórum dögum síðar tók maðurinn aðra bifreið í heimildar­leysi við fyrirtæki í Skógar­hlíð. Hann ók henni meðal annars um Reykja­nesbraut, þar sem hann ók utan í aðra bifreið, en yfirgaf vettvang án þess að sinna skyldum sínum vegna umferðar­óhappsins.

Í júní tók hann síðan þriðju bifreiðina heimildar­laust og ók henni um Bústaðaveg þar til lögregla hafði afskipti af honum.

Maðurinn játaði brotin skýlaust. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til játningar hans og þess að hann hefði lagt fram gögn um áfengis- og fíkniefna­meðferð. Fyrri auðgunar­brot horfðu hins vegar til refsiþyngingar.

Dómurinn ákvað þriggja mánaða fangelsi en frestaði fullnustu refsingarinnar. Refsingin fellur niður að tveimur árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð.

Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega 530 þúsund krónur í málsvarnar­þóknun og annan sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning