Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tveir rússneskir milljarðamæringar létust á indversku hóteli með tveggja daga millibili

Pavel Antov
Pavel Antov Mynd: Lubbi

Rússneskur pylsu­jöfurinn Pavel Antov fannst látinn á indversku hóteli, tveimur dögum eftir að vinur hans lést á sama hóteli tveimur dögum fyrri.

BBC segir að Antov hafi verið á ferðalagi ásamt þremur öðrum rússneskum milljarðamæringum í Odesha í austur­héruðum Indlans. Hafði hann meðal annars haldið upp á afmæli sitt á hótelinu.

Pylsu­jöfurinn er vel þekktur í borginni Vladimir, austur af Moskvu en þar var hann virkur í borgar­pólitíkinni.

Síðasta sumar neitaði hann að hafa skrifað færslu á WhatsApp-reikningi sínum þar sem hann gagnrýndi stríð Rússa í Úkraínu. Það var í júní síðastliðinn að Antov virtist bregðast við eldflauga­árás Rússa á íbúðar­blokk í Shevchenkivskyi-hverfi í Kænugarði. Í árásinni lést einn maður og sjö ára dóttir hans og eiginkona særðust. Í WhatsApp-skila­boðum í nafni Antovs er lýst hvernig fjöl­skyldan var dregin úr rústunum: „Það er gríðar­lega erfitt að kalla þetta eitthvað annað en hrylling,“ stóð í færslunni.

Skila­boðunum var eytt og skrifaði Antov færslu á samfélags­miðli þar sem hann sagðist vera stuðnings­maður Pútíns forseta og að hann væri „sannur föður­landsvinur“ sem styddi stríðið. Hélt hann því fram að einhver andstæðingur hinna „sérstöku hernaðar­aðgerða Rússlands í Úkraínu“ hefði komist yfir aðgang sinn á WhatsApp og birt færsluna sem hann væri mjög ósammála. Sagði hann þetta afar pirrandi misskilning

Dauði milljarðamæringsins er sá nýjasti í röð óútskýranlegra dauðsfalla Rússneskra jöfra síðan stríðið hófst í Úkraínu en margir þeirra höfðu opinber­lega mótmælt stríðinu.

Sjá einnig: Rússneskir ólígarkar í útrýmingar­hættu – Yfirferð

Frétta­miðlar í Rússlandi segja að Antov, sem var nýorðinn 65 ára, hafi fallið út um glugga a hótelinu í borginni Rayagada á sunnu­daginn. Annar meðlimur í hópnum, Vladimir Budanov lést á sama hóteli á föstu­daginn.

Lögreglu­stjóri Odisha lögreglunnar, Vivekananda Sharma sagði að Budanov hafi látist úr hjarta­áfalli og að vinur hans Antov, hafi „orðið þung­lyndur vegna dauða hins og því einnig látið lífið.“ Rússneski ræðis­maðurinn í Kolkata, Alexei Idamkin sagði í samtali við frétta­miðilinn Tass að lögreglan hafi ekki fundið neitt „glæpsamlegt við þessa hörmulega atburði.“

Leið­sögu­maðurinn Jitendra Singh sagði blaða­mönnum að Budanov gæti hafa „drukkið óheyrilegt magn áfengis þar sem hann átti áfengis­flöskur.“

Pavel Antov stofnaði kjöt­vinnslu­stöðina Vladimir Standard en árið 2019 mat Forbes tímaritið auðævi hans á 140 milljón dollara, á toppi listans yfir Rússneska þingmenn og embættis­menn. Spilaði hann mikilvægt hlutverk í löggjafa­þingi Vladimir-borgar en hann var formaður nefndar um land­búnaðar­stefnu og vistfræði borgarinnar. Vara­formaður þingsins í Vladimir, Vyacheslav Kartukhin, sagði að Antov hefði dáið við „hörmulegar aðstæður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu