Móðir heimsfrægu söngkonunnar Beyoncé, Tina Knowles er skilin við seinni eiginmann sinn. Tina var gift leikaranum Richard Lawson í átta ár eða síðan árið 2015.
Miðillinn TMZ greindi frá skilnaðinum. Ástæðan er sögð vera ósætti hjónanna sem ekki væri hægt að laga.

Brúðkaup þeirra Tinu og Richard var haldið í apríl árið 2015. Þau eiga engin börn saman en Tina á systurnar Beyonce og Solange með fyrrum eiginmanni sínum, Mathew Knowles. Tina óskar eftir því að eftirnafni sínu sé breytt úr Lawson og aftur í Knowles.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir