Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Mávagarg í stað iðandi bæjarlífs

Nýverið opn­aði ljós­mynda­sýn­ing Braga Þórs Jós­efs­sonar KRUMMASKUÐ.

Bragi hefur verið lengi í ljós­mynda­brans­anum og það er gaman að geta þess að hann var eig­in­lega hirð­ljós­mynd­ari Húsa og híbýla hér á árum áður. Bragi útskrif­að­ist frá Rochester Institute of Technology í New York árið 1986.

Hvað segir Bragi sjálfur um sýn­ing­una KRUMMASKUÐ: „Ég hef alltaf heill­ast af þorpum á lands­byggð­inni, sér­stak­lega stöðum þar sem hrika­leg nátt­úran rammar inn drauma geng­inna kyn­slóða: Stöðum sem við borg­ar­búar köllum stundum krumma­skuð í hroka okkar og þröng­sýni – en þorpin okkar eru þjóð­ar­ger­semi. Steinn Steinarr orti: „Í draumi sér­hvers manns er fall hans falið“ og það má oft heim­færa við mann­virki í krumma­skuðum nútím­ans, mann­virki sem stór­huga menn byggðu þegar vel áraði og fram­tíðin var björt. Nú standa mörg þeirra auð og yfir­gefin, fáir sjást á ferli og máva­garg hefur komið í stað iðandi bæj­ar­lífs.“

Við eigum öll upp­runa okkar í krumma­skuðum.

Bragi segir að fyrir ljós­mynd­ara séu öll þessi þorp, kaup­stað­irnir og litlu þorpin, mynd­rænn fjár­sjóður sem tengir saman nútíð og for­tíð.

„Hvert sem litið er birt­ist vitn­is­burður um stór­huga fram­tíð­ar­sýn eða list­ræna þörf. Við sjáum minn­is­varða mælda í húsa­kosti með per­sónu­leika og í atvinnu­tækjum sem sum hver gegna öðru hlut­verki í dag en þeim var ætlað í upp­hafi. Í þeim birt­ast per­sónu­leg sér­kenni sem við höf­uð­borg­ar­búar fáum ekki að tjá í okkar kassa­laga húsum í kassa­laga skipu­lagi. Við eigum öll upp­runa okkar í krumma­skuðum, við höfum bara gleymt því,“ segir Bragi.

Mynd­irnar á sýn­ing­unni eru svip­myndir frá nokkrum kaup­stöðum og þorpum sem Bragi hefur átt leið um á und­an­förnum árum og hluti af stærra verk­efni sem hann hefur verið að vinna að um skeið.

„Tíminn einn mun leiða í ljós hvort þetta verk­efni verður stærra eða viða­meira eða hvert það leiðir mig,“ segir hann að end­ingu og við hvetjum alla til að kíkja á sýn­ing­una KRUMMASKUÐ sem mun standa til 14. apríl og er í Ramskram, Njáls­götu 49. Þar er opið er um helgar, milli klukkan 14 og 17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni