Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hélt fyrstu einkasýninguna 17 ára gamall

Sæþór Örn Ásmunds­son hefur teiknað síðan hann man eftir sér, þegar hann var í 10. bekk mál­aði hann í fyrsta skipti á striga og þá varð ekki aftur snúið. Sæþór lærði hreyfigrafík á Ítalíu og nú á hann og rekur Farva sem er prent­verk­stæði og verslun sem selur prentgúmmelaði, ásamt Þor­björgu Helgu eig­in­konu sinni sem er graf­ískur hönn­uður.

Við kíktum í Álf­heim­ana þar sem lista­mað­ur­inn býr en Farvi er á neðri hæð­inni.

Hvernig lista­maður ertu? „Olíu­mál­verkið hefur alla tíð heillað mig og ég hef mest unnið með þann miðil. Hef svo verið að grúska í prenti síðan 2010 og silki- og riso­prentað verkin mín á prent­verk­stæð­inu Farva sem ég rek með graf­íska hönn­uð­inum og eig­in­konu minni, Tobbu.“

Ákvaðst þú á ein­hverjum tíma­punkti að verða lista­maður eða gerð­ist það bara „óvart“? „Ég hef alla tíð teiknað mikið, sem krakki var ég alltaf að teikna en svo þegar ég fór í mynd­list­ar­val í 10. bekk og fékk að prófa að mála á striga varð ekki aftur snúið.“

Hvenær sól­ar­hrings­ins finnst þér best að vinna? „Ég er á þeim stað í líf­inu þar sem mikið að gera á stóru heim­ili og á prent­verk­stæð­inu. Mér finnst því eig­in­lega bara best að vinna þegar ég hef tíma sem er oft á kvöldin og nótt­unni.“

Hvernig verk ertu aðal­lega að gera og fyrir hvað? „Núna vinn ég mikið figúra­tíft, menn og dýr.“

Mynd/Aldís Páls­dóttir

Hvaða litir heilla þig? „Ég hef yfir­leitt heill­ast meira af sterkum hreinum litum en svo má ekki van­meta svarta lit­inn og gráu tón­ana sem eru svo­lítið eins og móð­ur­skipið sem bindur alla liti saman.“

En form? „Eins og verkin mín bera með sér þá vinn ég mikið með grunn­formin og svo auð­vitað lín­una … sé hún nógu þykk verður hún á end­anum að formi.“

Hefur þú alla tíð haft gaman af því að teikna og mála? „Síðan ég man eftir mér, já. Ég hélt mína fyrstu einka­sýn­ingu fyrir 23 árum, þá 17 ára gam­all.“

Hvaða lista­menn eru í upp­á­haldi hjá þér? „Wassily Kand­in­sky, Picasso, og Þor­valdur Skúlason.“

Hvar fást mynd­irnar þínar? „Olíu­mynd­irnar og prent­verkin fást hjá okkur í Farva, Álf­heimum 4, og í net­verslun okkar farvi.is. Olíu­verkin eru einnig í versl­unn­inni og vinnu­stof­unni á efri hæð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni