Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kristján óperusöngvari sagði Kastljóskonu rauða á brjóstunum og löðrungaði Gulla Helga

Það gustaði um Kristján Jóhannsson óperu­söngvara eftir að hann sagði Eyrúnu Magnúsdóttur, þáverandi þátta­stjórnanda Kast­ljóssins, vera rauða á brjóstunum af æsingi. Fyrr um daginn hafði hann jafnframt slegið sjónvarps­manninn Gulla Helga á Stöð 2 er söngvarinn mætti í viðtal í Bítinu. „Þetta var helvíti fast,“ sagði Gulli í viðtölum eftir þáttinn með Kristjáni.

Í bæði viðtölin mætti Kristján haldandi að hann væri að fara að fá tækifæri til að kynna nýútkomna hljóm­plötu sína. Sú varð aldeilis ekki raunin því Gulli og Eyrún höfði meiri áhuga á að krefja hann svara fyrir að þiggja laun fyrir að koma fram á styrktar­tónleikum fyrir langveik börn.

„Kristján laug“

Þegar Kristján mætti til Gulla Helga fékk hann að sjá forsíðu DV í fyrsta skipti í beinni útsendingu þar sem fyrir­sögnin var „Kristján laug“. Í blaðinu var óperu­söngvaranum gefið að sök að þiggja himinhá laun fyrir að koma fram á styrktar­tónleikum í Grafar­vogskirkju, þar sem markmiðið var að safna fé til stuðnings barna- og unglinga­geðdeild Land­spítalans.

Fyrir utan Kristján komu þau fram á þeim tónleikum þau Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Sigrún Hjálmtýs­dóttir, betur þekkt sem Diddú. Og í DV sagði Sigmar Steingrímsson, formaður Lionsklúbbsins Fjörgynar í Grafar­vogi, klúbbnum sem hélt styrktar­tónleikana: „Það fékk enginn þeirra tónlistar­manna sem kom fram á tónleikunum í Grafar­vogskirkju greitt.“ Það er, fyrir utan Kristján Jóhannsson óperu­söngvara og allt ætlaði um koll að keyra í samfélaginu.

Sannur Ítali

Framkoma Kristjáns óperu­söngvara í íslandi í bítið og Kastljósi varð fljótlega á hvers manns vörum. Eins og áður sagði sló Kristján sjónvarps­manninn Gulla Helga og sagði brjóstin á Eyrúnu vera rauð af æsingi.

„Þú heilsar mér þegar ég kem inn og skellir þessu svo framan í mig,“ sagði Kristján við Gunnlaug Helgason þegar hann spurði hann út í forsíðu­frétt DV á miðvikudaginn. Kristján varð mjög reiður og missti nánast stjórn á sér þegar hann sá forsíðuna. Gunnlaugur segir þau alls ekki hafa ætlað að koma svona aftan að Kristjáni. Gáfu honum tækifæri „Við hentum til hans björgunar­hring sem hann ekki tók,“ segir Gunnlaugur sem ætlaði að gefa Kristjáni kost á að svara fyrir frétt DV með skyn­samlegum rökum, bjóst við að hann hefði séð blaðið sem hann hafði ekki gert.

„Ég hálf vorkenndi honum. Hann kom þessu mjög illa frá sér. Hann er orðinn eins og sannur ítali, fljótur upp og fljótur niður aftur,“ sagði Gulli Helga sem sjaldan sagðist hafa lent í öðru eins.

Inga Lind Karls­dóttir stýrði Bítinu með Gulla á þessum tíma. Hún hafði þetta að segja um löðrung óperu­söngvarans. „Ég er alveg búin að ná mér enda sagði hann lítið annað við mig en hvað ég væri sæt og fín. Þetta var svolítið groddalegt klapp sem hann gaf Gunnlaugi á vangann en svona er hann víst vanur að heilsa fólki,“ sagði Inga Lind.

Eyrún með rauðu brjóstin

Árið 2004 vildu hvorki Eyrún né Sigmar Guðmundsson, stjórn­endur Kastljóss, tjá sig um hegðun Kristjáns söngvara í Kast­ljósinu. Heimilda­menn DV á sínum tíma sögðu þau hins vegar bæði hafa verið í sjokki eftir þáttinn en þar greip Kristján fram í fyrir Eyrúnu, sem þá var að fara yfir kostnaðar­liði styrktar­tónleikanna, og sagði Eyrúnu í Kast­ljósinu vera með rauð brjóstin af æsingi. „Brjóstin á henni eru orðin rauð, svo upptrekkt er konan,“ sagði Kristján við Eyrúnu.

Í Kastljós­þættinum hélt Kristján allan tímann á nýút­kominni plötu sinni sem hann harmaði að kæmi út við þessar aðstæður. „Þetta er ekki mjög æskilegt andrúms­loft sem hún kemur í þessi elska. Kaupið bara plötuna mína og látið ykkur líða vel,“ sagði Kristján að lokum.

Allt tekið úr samhengi

Og það er svo í nýút­komnum podcast-þætti Sölva Tryggva­sonar sem Kristján óperu­söngvari tjáir sig loks um hin umdeildu viðtöl sem hann fór í og þá staðreynd að hann þáði laun fyrir að koma fram á tónleikunum.

Til að skýra mál sitt skulum við gefa Kristjáni einfald­lega orðið:

„Þetta var ótrúleg atburðarás og það var allt tekið úr samhengi og í raun bara beinlínis logið upp á mig í fjöl­miðlum. Ég hef alla tíð verið mjög ötull í að láta gott af mér leiða, ekki síst eftir að ég missti þáverandi konuna mína úr krabba­meini fyrir þrítugt. Þess vegna var þetta sérstak­lega sárt. Það var mikill fjöldi fólks á sviðinu á þessum tónleikum og það fengu allir borgað fyrir vinnuna sína. Og sumir hafa líklega aldrei verið á hærri launum en þarna. Ljósamenn, hljóðfæra­leikarar, hljóðmenn, söngvarar, allir voru á launum. Kaupþing Banki styrkti tónleikana og keypti afraksturinn og setti á plötu. Launin mín komu þess vegna frá Kaupþingi og höfðu ekkert með innkomu tónleik­anna að gera. Bankinn keypti tónleikana og borgaði því vinnu allra. En þetta var sett upp eins og að ég hafi einn fengið borgað og tekið launin mín beint frá málefninu sjálfu. DV byrjaði málið og svo tók RÚV það upp og birti sömu lygina og hafði verið í DV. En það spurði mig aldrei neinn út í þetta áður en þetta var birt,“ segir Kristján og bætir við:

„Ég fékk meira að segja borgað í Evrum frá bankanum, þannig að það að halda því fram að þetta kæmi af ágóða tónleik­anna var algjör­lega galið. Svo var ég plataður í Kast­ljósið. Ég mætti þangað til að kynna plötu og vissi ekki að ég væri að fara að tala um þetta mál. En á sama tíma og ég er að undirbúa mig undir að fara í Kast­ljósið er verið að lesa fréttina um mig hinum megin í húsinu á RÚV. Ég var með plötu í hendinni og hélt að ég væri að fara að tala um tónlistina mína í Kast­ljósinu. Svo var bara komið í bakið á mér með alls konar spurningar í beinni útsendingu án þess að ég hefði hugmynd um að það væri í vændum. En ég náði nú að hrista þetta frekar fljótt af mér. Shakespeare sagði einhvern tíma: „Fólk er fífl“ og ég hafði það í huga í gegnum þetta ferli. En það er ekkert sem þú getur gert þegar fjöl­miðlarnir fara af stað með þessum hætti og hringekjan fer af stað. Þetta var í raun og veru bara eins og árás og það er erfitt að skilja hvernig argasta bull getur náð svona miklu flugi. Það er ekki fyrr en löngu síðar þegar rykið er sest sem hægt er að tala um þetta af einhverju viti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning