Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og forstjórinn Jón Skaftason gengu í það heilaga á milli jóla og nýárs.
Komu þau fjölskyldu sinni á óvart með lítilli athöfn heima í stofu, sem Hildur segir á Facebook síðu sinni að hafi verið ákveðin með nokkurra daga fyrirvara.
„Um jólin giftist ég loks honum Jóni mínum í lítilli athöfn í stofunni heima, umkringd nánustu fjölskyldu. Herlegheitin voru ákveðin með nokkurra daga fyrirvara og komu viðstöddum að óvörum. Það var auðvitað löngu tímabært að þinglýsa ráðahagnum enda fyrningarfrestur á trúlofuninni að renna út.Vinir og bandamenn – örvæntið ekki – það verður partý í sumar!“
Nýverið bauð Hildur sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hún er enn sem komið er eini frambjóðandinn í oddvitasætið, en prófkjörið fer fram 26. febrúar næstkomandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir