Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynjar Níelsson dregur fólk í dilka: „Tvenns konar týpur eru mest áberandi“

Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot
Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot

Í nýrri fésbókar­færslu tjáir Brynjar Níelsson sig um hvernig flokka megi mann­skepnuna og hvernig tvær fylkingar hennar eru hvað mest áberandi. Ætla má á skrifum hans og meðfylgjandi athuga­semdum að Brynjar gefi út skoðun sína í kjölfar harðrar gagnrýni á Jón Gunnarsson utan­ríkis­ráðherra og ríkis­stjórnina. Upp á síðkastið hefur mikið verið fjallað um þegar hópi innflytenda var vísað úr landi og vilja meina að aðgerðin hafi verið ómannúðleg.

Brynjar klæðir sig í hlutverk hins gamla og vitra manns og byrjar á að fara yfir fyrri gerð manneskjunnar sem hann telur meðvirka, óábyrga, sjálf­miðaða og ógagnlega.

„Á langri ævi áttar maður sig á að maðurinn er ekki eins fjöl­breytilegur og ætla mætti við fyrstu sýn. Tvenns konar týpur eru mest áberandi. Annars vegar meðvirka og óábyrga týpan sem trúir að manngæska þess sé meiri en annarra án þess að leggja neitt á sig sjálft í þeim efnum og klæmist bara út í það óendanlega. Það er gjarnan mjög sjálf­miðað og sér því aldrei heildar­samhengi hlutanna. Merkilega margir úr þessum hópi sem komast til æðstu metorða en reynast samt iðulega til lítils gagns og sem verra er stundum til verulegs ógagns.„

Brynjar heldur áfram og lýsir seinni mann­gerðinni sem fórnfúsri og tilbúin að ganga í skít­verkin. Hún sé sann­kallaður skotspónn óvinsælda.

„Hins vegar er það leiðinlegi gæinn sem er svo vitlaus að segja bara það sem enginn vill heyra og tekur í þokkabót eingöngu að sér óvinsæl jobb, jafnvel í eigin hópi, til að viðhalda stöðugri andúð á sér. Hann á það til að taka hanskann upp fyrir fordæmda í samfélaginu og skamma síðan puntudúkkurnar og frekjurnar, sem dregur síður en svo úr óvin­sældum og andúð á honum.“

Að endingu vill Brynjar meina að sann­leikurinn sé einfaldur og augljós.

„Stundum þarf ekki meira til en að segja einfaldan sannleika sem blasir við öllum. Þar sem læknis­fræðin er í stöðugri þróun mun vera stutt í að þessi týpan fái sjúkdóms­greiningu. Þá verður loks búið að sjúk­dómsgreina alla þjóðina. Full ástæða til að óska skatt­greiðendum til hamingju með það. Það er nóg til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning