Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Leikarar úr Staupasteini minnast Kirstie Alley: „Ég mun sakna hennar mjög, mjög mikið“

Hver man ekki eftir þessum frábæru þáttum?
Hver man ekki eftir þessum frá­bæru þáttum? Mynd: Trausti Hafsteinsson

Leikarar sem léku með Kirstie Alley í Staupa­steini fyrir þrjátíu árum síðan, minnast hennar með hlýhug.

Tilkynnt var um andlát Kirstie Alley á mánudaginn en hún lést eftir stutta baráttu við ristil­krabbamein. Hún var 71 árs.

Alley kom inn í Staupa­stein í sjöttu seríunni en þær urðu 11 alls. Þar lék hún Rebeccu Howe en fyrir túlkun sína hlaut hún bæði Emmy og Golden Globe verðlaun.

Í gær minntist Ted Danson sem lék kvenna­bósann Sam Malone í Staupa­steini, Alley.

„Ég var í flugvél í gær og gerði nokkuð sem ég geri venjulega ekki. Ég horfði á gamlan þátt af Staupa­steini. Það var þátturinn þar sem Tom Berenger bað Kirstie að gifta sér en hún sagði ítrekað nei, þrátt fyrir að vilja endilega segja já. Kirstie var svo sannarlega frábær í þættinum,“ skrifaði hinn 74 ára leikari í tilkynningu til ET. Og hann hélt áfram: „Leik­hæfileikar hennar þar sem hún leikur konu sem er á barmi tauga­áfalls var bæði hrífandi og rífandi fyndið. Hún lét mig hlæja fyrir 30 árum er hún lék í þessari senu, og hún lét mig hlæja alveg jafnmikið í dag. Þegar ég kom úr flug­vélinni heyrði ég að Kirstie hefði látist. Ég er svo sorg­mæddur og svo þakklátur fyrir öll skiptin þar sem hún fékk mig til að hlæja. Ég sendi ástar­kveðjur til barna hennar. Eins og þau vita vel þá var móðir þeirra með hjarta úr gulli. Ég mun sakna hennar.“

Kelsey Grammer sem lék sálfræðinginn Frasier Crane í Staupa­steini og í hliðar­þáttunum Frasier heiðraði einnig minningu Alley í yfir­lýsingu sem hann sendi ET:

„Ég hef alltaf trúað því að sorg vegna opinberrar persónu er einkamál, en ég get sagt að ég elskaði hana.“

Rhea Perlman, sem lék hina lágvöxnu og fljótfærnu Carla Tortelli í Staupa­steini skrifaði um tengslin sem hún átti við Alley og sameiginlega ást þeirra á börnunum.

„Kirstie var einstök og yndisleg manneskja og vinur. Lífsleði hennar var óþrjótandi. Við urðum næstum því samstundis vinkonur þegar hún byrjaði að leika í Staupa­steini,“ sagði hin 74 ára leikkona í samtali við ET. „Hún elskaði börn og börnin mín elskuðu hana líka. Við vorum með gistinætur heima hjá henni með ratleikjum sem hún bjó til. Hún hélt stærðarinnar Halloween- og páska­veislur og bauð öllu starfs­fólki þáttanna og fjöl­skyldum þeirra. Ég hef aldrei hitt nokkra eins og hana. Ég finn fyrir þakklæti að hafa þekkt hana. Ég mun sakna hennar mjög, mjög mikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt