Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sigríður húðskammar Þórhildi – Alltaf í útlöndum en aldrei á Alþingi: „Hvað ertu gömul Sigga?“

Tvær þingkonur hafa síðastliðinn sólar­hring átt í nokkuð furðulegri ritdeilu á internetinu. Það eru þær Sigríður Andersen, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, og Þórhildur Sunna Ævars­dóttir í Pírötum. Sigríður átti tvímæla­laust frum­kvæðið að þessum deilum en þær hófust með skjáskoti sem hún birti á Twitter.

Ekki leið að löngu þar til Sigríður lét Þórhildi hafa það óþvegið og fullyrti að hún hefði meiri áhuga á að fara til útlanda í boði skatt­greiðenda, en að sinna vinnu sinni og sitja á Alþingi. Hvort sem það sé sann­gjarnt eða ekki þá hefur það loðað við Pírata að þeir fari áberandi oftar til útlanda á vegum Alþingis. Fæstir gera svo ráð fyrir öðru en þetta séu hálf­gerðar skemmtiferðir.

Sigríður virðist vísa til þess orðspors. Í það minnsta telur hún duga að birta skjáskot af dagskrá Alþingi en þar mátti sjá í hvaða landi Þórhildur Sunna var þann daginn.  en hér fyrir neðan má sjá skjáskotið sem Sigríður deildi fyrst. Þar mátti sjá dagskrá Alþingis í fyrradag og að þá væri Þórhildur Sunna í París, til að ræða gervi­greind. Ætla má að Sigríði hafi ekki þótt þetta aðkall­andi fundur. En Þórhildur Sunna tók þessu heldur illa, birti skjáskot af skjáskoti Sigríðar, og skrifaði: „Hvað ertu gömul Sigga?“

Þetta varð til þess að Sigríður útskýrði mál sitt: „Ég er 50 ára en læt samt enn koma mér á óvart hversu mjög kjörnir fulltrúar eru áfjáðir í að vera frekar erlendis en á landinu sem þeir voru valdir til að sinna. Allt verður þeim tilefni til utanfarar á kostnað skatt­greiðenda. Allt.“

Þórhildur bar fyrir sig að þetta væri í boði ESB en ekki lands­manna. Sigríður féllst ekki á það og skrifaði: „Íslenskir skatt­greiðendur láta 65 milljónir renna til Evrópu­ráðsins ár hvert. Skatt­greiðendur annarra Evrópu­ráðsríkja greiða það sem upp á vantar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning