Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lífsreynsla karla gerði Jóhönnu orðlausa – „Þeir kjósa frekar að fela sársauka sinn‘‘

„Mér finnst dálítið grunsamlegt hvað íslenskir karlmenn hafa gert lítið að því að ræða tilfinningamál sín, miðað við það sem gengur og gerist í nágranna­löndum okkar,‘‘ sagði Jóhanna Sveins­dóttir í viðtali við DV. Viðtalið birtist þann 19.október árið 1985 en hafði Jóhanna nýlega lokið við að skrifa bók um tilfinningalíf karlmanna. Bókin fékk nafnið Íslenskir elskhugar en viðtalið hlaut töluverða athygli á sínum tíma. Jóhanna sagði í viðtalinu að margir hafi í fyrstu misskilið um hvað bókin fjallaði og sumir hafi trúað því að hún væri einungis að skrifa um kynlíf íslenskra karlmanna. Um þá karlmenn sem göntuðust með skrif Jóhönnu sagði hún; „Þetta eru kannski þeir menn sem springa með hvað mestum látum drukknir eða við annarlegar aðstæður. Þessi viðbrögð segja meira um þá sjálfa en mína bók.” Jóhanna tók viðtöl við 18 karlmenn á aldrinum 20—75 ára. Spurði hún um tilfinningar þeirra vítt og breitt, ástina, vináttuna, kynhlutverk og karl­mennsku. Auk þess spurði hún um afstöðu þeirra til jafnréttis­baráttu kvenna og sagði hún ekki hafa verið annað hægt en að minnast á kynlífið. Aðspurð hvernig hafi gengið að fá menn til þess að taka viðtölin við sagði hún færri hafa komist að en vildu.

„Þeir kjósa frekar að fela sársauka sinn undir kaldrana­legum eða hálfkærings­legum hjúpi. Oft þarf aðstoð Bakkusar til að þessi hjúpur rofni og þá með býsna ofsa­fengnum hætti. Þar fyrir utan hefur brenni­vínið verið alltof snar þáttur í íslenskri erótík. Einn viðmælandi minn orðar þetta þannig að íslenska þjóðin þurfi ákveðið magn af brenni­víni til að viðurkenna að hún hafi náttúrulegar kenndir. Þessi maður, sem er á miðjum aldri og bjó lengi á megin­landi Evrópu, kvartar líka undan því að siðferðis­staðall íslensks kvenfólks sé miklu lægri en á megin­landi Evrópu. Hér séu konur til í tuskið en á lítt sjarmerandi hátt: í pörunar­leikjum kynjanna þurfi menn helst að drekka hálfa flösku af brenni­víni og troða hálfri gulrót upp í konuna til að sjá sama ástríðu glampann í augum hennar og edrú kynsystur hennar suður í álfu á rómantískristund. Ekki legg ég dóm á þetta fremur en annað en það þarf engum að koma á óvart að brennivíns­drykkja komi talsvert við sögu í frásögnum viðmælendanna,” sagði Jóhanna.

Sagði hún að ýmislegt af lífs­reynslu þeirra, ekki síst úr uppeldinu, hafi gert hana orðlausa. Karlmenn sem höfðu farið í háskólanám áttu erfiðara með að vera einlægir en hinir. Aðspurð hvers vegna hún hafi ekki skrifað bók um tilfinningar íslenskra kvenna sagði hún; „Ég held að þær séu fullfærar um það sjálfar. En mér þótti meðbræður mínir örlítið hjálpar­þurfi í þessum efnum og því gaf ég þeim orðið. En þessi bók afsannar að mínu mati þá rang­hugmynd að íslenskir karlmenn geti ekki talað um tilfinningar sínar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning