Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Sigríður segir Davíð hafa misskilið sjálfan sig: „Ósammála? Nei við erum sammála“

Sigríður Á. Andersen.
Sigríður Á. Andersen.

„Hvað bendir til þess að hval­veiðar hafi slæm áhrif á þjóðar­búið?,“ spyr Sigríður Andersen, Sjálfstæðis­kona og fyrr­verandi ráðherra, á Twitter. Þar karpar hún við annan Sjálfstæðis­mann, Davíð Þorláksson, um hvort hval­veiðar skaði ímynd Íslands, líkt og margir halda fram. Sigríður segir það mýtu og vísar til fjölgun ferða­manna síðustu ár.

Upphafið að þessu var tíst Davíðs fyrr í dag en þar velti hann fyrir sér lausn við hvalveiði­vandanum. „Hval­veiðar hafa slæm áhrif á þjóðar­búið. Það eru hins vegar ekki nógu sterk rök til að banna þær. Ein lausn gæti verið að hafa hval­veiðikvóta fram­seljanlegan án takmarkana. Verndunar­sinnar gætu keypt hann án þess að nýta hann. North Atlantic Salmon Fund væri góð fyrirmynd,“ skrifar Davíð.

Hann svarar svo spurningu Sigríðar um skaðsemi hvalveiða. „Frásagnir fjölmargra í ferða­þjónustu og útflutningi og upplýsingar um takmarkaða eftir­spurn erlendis eftir hvalkjöti og arðsemi í greininni. En eflaust full ástæða til að gera rannsókn á þessu.“

Þetta kaupir Sigríður ekki. „Frásagnir!  Staðan er þessi. Ferða­mönnum hefur fjölgað ár frá ári, svo mikið að sumum finnst nóg um. Fisk­afurðir Íslendinga seljast upp, alltaf. Á sama tíma hafa farið fram hval­veiðar. Og ætli ekki megi finna atvgreinar með minni arðsemi.“

Davíð leggur ekki í að þræta um þetta. „Jæja, við erum ósammála um það. En aðal­punkturinn var að gera hval­veiðikvóta fram­seljanlegan og svara umræðu um vernd með því að benda þeim á að kaupa hann. Er eitthvað því til fyrir­stöðu?“

Viðbragð Sigríðar er nokkuð sérstakt, hún segir Davíð bara víst sammála henni. Hann sé mögulega bara ringlaður.  „Ósammála? Nei við erum sammála um að ekkert bendi til þess að hval­veiðar skaði þjóðar­búið. Bara órökstuddur orðrómur – enda leggur þú ekki til bann við þeim. Jú fram­seljanlegir kvótar eru vel til þess fallnir að vernda dýr/náttúru­auðlindir í hættu.“

Mælsku­bragð Sigríðar er bæði frumlegt og nokkuð djarft. Davíð lætur þó ekki plata sig svo auðveldlega og svarar að lokum:

„Við erum ekki sammála um það, eins og kemur skýrt fram í máli mínu hér að ofan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað