Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Arkitekt lýsir yfir áhyggjum af „gúmmívæðingu“ leikvalla

„Öruggt þarf ekki að þýða fyrir­sjáanlegt“

Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt
Hildur Gunn­laugs­dóttir, arki­tekt „Leik­svæði þarf ekki að vera þakið lit­ríku gúmmíi til þess að vera gott“ Mynd: Facebook/Hildur Gunnlaugsdóttir

Hildur Gunnlaugs­dóttir, arkitekt hjá ASK arkitektum, deilir áhyggjum sínum af þróun leikvalla­hönnunar á opinberum vettvangi. Hún telur samfélagið hafa ýtt öryggis- og viðhalds­kröfum svo langt að ævintýrið og hinn frjálsi leikur barna séu að líða fyrir það.

Hildur varpar fram spurningu til foreldra og hönnuða og spyr eftir dæmum um skemmtilega leikvelli þar sem börn geta virkilega gleymt sér. Hún bendir á að mörg nútíma leiksvæði séu hönnuð þannig að nánast allt sé fyrirfram ákveðið.„Mér finnst við stundum vera komin svolítið langt í þá átt að hanna leiksvæði þar sem nánast allt er fyrirfram ákveðið: hér á að róla, hér á að renna, hér á að klifra. Öruggt, litríkt og auðvelt í viðhaldi – en kannski ekki alltaf mjög ævintýralegt,“ segir Hildur í færslu sinni.

Kallar eftir náttúrulegum felustöðum

Að mati Hildar þurfa börn staði þar sem þau hafa frelsi til að skapa sinn eigin leik frá degi til dags, með því að nýta óstýrð tól og náttúruleg efni. „Börn þurfa líka staði þar sem þau geta sjálf ákveðið hvað leikurinn á að vera. Hóla, runna, gras, tré, steina, sand, mold og felustaði. Eitthvað sem getur verið eitt í dag og allt annað á morgun,“ segir hún og minnir á mikilvægi þess að manneskjan sé hluti af nátt­úrunni. Hún vísar máli sínu til stuðnings í finnska rannsókn þar sem náttúru­legum skógar­botni og gróðri var bætt inn á leiksvæði leikskóla. Niður­stöðurnar sýndu að aðeins 28 dögum síðar mældust jákvæðar breytingar á örveru­flóru og ónæmis­kerfi barnanna.

Kerfið setur strangar skorður

Hildur tekur fram að gagnrýnin beinist alls ekki að landslags­arkitektum sem hanna svæðin, heldur frekar þeim ströngu kröfum og ramma sem samfélagið setur þeim. Hönnuðir þurfi að uppfylla strangar reglur um öryggi, aðgengi og rekstur. „Og auðvitað eiga leiksvæði að vera örugg. En kannski höfum við sem samfélag ýtt kröfunum aðeins of langt… Öruggt þarf ekki að þýða fyrir­sjáanlegt. Og leiksvæði þarf ekki að vera þakið litríku gúmmíi til þess að vera gott leiksvæði,“ segir Hildur að lokum.

Máli sínu til stuðnings gerði hún myndband þar sem hún fer yfir sínar hugmyndir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning