Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vinkona Ásdísar Ránar hvarf sporlaust: „Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Ísdrottningin, Ásdís Rán Gunnars­dóttir, hefur verið á milli tannanna á Íslendingum síðan hún var kornung. Hún hefur marga fjöruna sopið síðan hún kom fyrst fram á sjónar­sviðið sem fyrirsæta á unglings­aldri. Ásdís er nú komin til Íslands, eftir að hafa meira og minna búið erlendis í fjölmörg ár, aðallega í Búlgaríu. Í kjölfar alls kyns ævintýra, verkefna og viðskipta flutti hún aftur heim í kjölfar Covid-tíma­bilsins og er sest hér að í bili. En þó að hún sé komin heim á klakann er augljóst að Ásdís er ekki ákveðin í að setjast hér alfarið að.


Brynvarðir bílar, límósínur, demantar og lífverðir


Ásdís fór upphaf­lega til Búlgaríu með fyrr­verandi manni sínum, knattspyrnu­manninum Garðari Gunnlaugs­syni. Hugmyndin var að lifa rólegu og þægilegu lífi, þar sem hann fengi athyglina, en hún sæi um heimilið. En mjög fljótt kom í ljós að fram­vindan ætti eftir að verða önnur. „Þetta byrjaði allt með því að Garðar fékk tilboð frá CSKA Sofia í Búlgaríu árið 2008. Þá vissum við í raun ekki mikið um landið, en höfðum í einhvern tíma verið að hugsa um að okkur langaði að flytja í hlýrra land og á endanum ákváðum við að slá til. Hann skrifaði undir samninginn og við ákváðum í kjölfarið að flytja til Sofiu, höfuð­borgar Búlgaríu. Maður fann mjög fljótt að knattspyrnu­mennirnir eru algjörar stór­stjörnur þarna, sem olli því að fjöl­miðlarnir fóru fljótt að skoða hver væri eiginkona Garðars. Þá gerðist það eiginlega á einni nóttu, að fjöl­miðlar fengu mikinn áhuga á mér. Það var til svo mikið af myndum og greinum um mig, að þær fóru strax að veltast um í gulu pressunni og þá varð ekki aftur snúið. Ég hafði séð fyrir mér að ég yrði fótbolta­eiginkona með börn og myndi lifa rólegu lífi í Búlgaríu, en það breyttist hratt,“ segir Ásdís brosandi og heldur áfram: „Ég fékk strax mikla athygli og gat því fljótt búið til minn eigin feril. Ég fékk mjög fljótt vel borgað fyrir þau verkefni sem ég tók að mér og þetta var eiginlega bara draumur í dós. Mér leið mjög fljótt eins og ég væri komin á minn heimavöll og kunni mjög vel við alla athyglina sem ég fékk og hvað ég fékk mörg tækifæri.“ Ásdís neitar því samt ekki að sumt sem þyki eðlilegt í Austur-Evrópu væri litið öðrum augum á Íslandi og hinum Norður­löndunum.

„Auðvitað er margt skrýtið og sérstakt miðað við það sem við þekkjum, sérstak­lega þegar kemur að þekktu og ríku fólki í Austur-Evrópu. Brynvarðir bílar, límósínur, demantar og lífverðir eru bara eðlilegur hlutur fyrir fólk sem á peninga í Búlgaríu og lífs­stíllinn er oft og tíðum mjög ýktur. Sumir af þeim sem eiga mestu peningana eru ekki í löglegri starfsemi. Þegar við tölum um austur evrópskar mafíur þá erum við að tala um alvöru mafíur. Undir­heimarnir í Búlgaríu eru ekki eins og undir­heimar Íslands og sumt er eins og það sé klippt út úr bíómynd. En þó að það hafi á köflum verið skrautlegt að vera innan um þessa hluti getur það líka verið mjög skemmtilegt.“


Ásdís segir að mjög margt hafi breyst á undan­förnum árum í Búlgaríu og að höfuð­borgin sé orðin mun vestrænni en hún var. Það sé fjöldi viðburða um alla borg og frábærir veitinga­staðir og kaffihús á hverju strái. Þó að hún hafi ferðast um allan heim og búið víða, kann hún hvergi betur við sig en í Sofiu. „Mér finnst Búlgaría stórkostlegt land og ég elska Búlgaríu. Mér hefur alltaf liðið vel þarna og var meðtekin af samfélaginu strax og hef alltaf upplifað almenna velvild frá fólki.“

„Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Það er augljóst að Búlgaría er orðin stór hluti af Ásdísi og að hún sér fyrir sér að vera áfram með annan fótinn þar. Eitt af því áhuga­verðara og erfiðara sem Ásdís upplifði í Búlgaríu var þegar ein besta vinkona hennar, Ruja Ignatova, hvarf sporlaust árið 2017, eftir að hafa tengst fjársvika­máli sem vakti heims­athygli. Ruja var, þegar hún hvarf, orðin milljarðamæringur í gegnum rafmyntina OneCoin. Ásdís og Ruja voru í miklu sambandi allt þar til daginn sem sú síðarnefnda hvarf sporlaust og ekki hefur spurst til hennar síðan. „Við höfðum verið vinkonur alveg frá árinu 2009 og þekktumst mjög vel. Hún fjárfesti í fyrsta fyrir­tækinu mínu í Búlgaríu og við urðum fljótt góðar vinkonur. Hún var alltaf vel stæð, en undir það síðasta var hún orðin milljarðamæringur og líf hennar hafði breyst samkvæmt því. Ég var með henni síðustu tvo mánuðina áður en hún hvarf og þá vildi hún ekki umgangast nema örfáa. Þá vorum við mest við Svartahafið, þar sem hún var með risastóra snekkju á fjórum hæðum. Þó að ég hafi auðvitað ekki haft hugmynd um hvað var í vændum, fann ég undir það síðasta að hún var orðin mjög skrýtin og slæm í skapinu. Ég hélt að hún væri bara orðin þunglynd og buguð af álagi, af því að vera að stjórna þessu öllu alein. Hún var orðin mjög vör um sig og óttaðist að fólk væri á eftir henni, en ég hélt að það væri bara af því að hún var orðin svo rosalega rík og í Austur- Evrópu eru miklu fleiri hættur fyrir ríkt fólk. En svo hvarf hún bara og ég hef ekkert heyrt frá henni síðan, né nokkur annar í kringum hana.“

Þetta brot er úr viðtali sem birtist áður í 17. tölublaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning