Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Harka í bílaviðskiptum í Seláshverfi – Hentu kaupandanum undir kalda sturtu

Köld sturta getur verið allra meina bót.
Köld sturta getur verið allra meina bót.

Í janúar 1990 barst lögreglunni tilkynning frá bíla­kaupanda sem sagði farir sínar ekki sléttar, þvert á móti. Hafði hann þá lent í árás manna sem áður höfðu selt honum bifreið. Réðust þeir að manninum og klæddu hann úr fötunum og hentu honum undir kalda sturtu. Eftir það óku þeir bílnum aftur til síns fyrri heimilis. Um ástæðuna fyrir þessari óvenju­legu árás má lesa hér fyrir neðan en DV fjallaði um málið á sínum tíma:

Hörkuátök í bíla­viðskiptum í Selás­hverfi:

Stungu kaup­andanum undir kalda sturtu

Allsérstæðar innheimtu­aðgerðir vegna bíla­viðskipta voru viðhafðar í húsi einu í Selás­hverfi um helgina. Þær enduðu með því að ráðist var að bílkaupandanum á heimili hans og honum stungið undir kalda sturtu. Seljandi bílsins hafði ekki fengið greitt fyrir bílinn sem hann seldi íbúa í Selás­hverfi. Fór hann þá á föstudags­kvöldið við annan mann til að krefja kaup­andann um peninga. Kaup­andinn sagðist ekki hafa þá handbæra. Þá vildi seljandinn að kaupin gengju til baka og sakaði kaup­andann um að hafa falsað banka­skjal. Þessu neitaði seljandinn. Tvímenningarnir réðust þá á kaup­andann, rifu fötin af honum og tuskuðu hann til í íbúðinni. Honum var einnig hótað lífláti ef hann segði lögreglunni frá. Að lokum var maðurinn færður undir kalda sturtu. Við svo búið tóku mennirnir bíllyklana með sér og keyrðu bílinn umdeilda í burtu.

Bílkaupandinn tilkynnti til lögreglu um aðfarir mannanna og að búiö væri að stela bílnum hans. Seinna um kvöldið afhenti seljandi bílsins lögreglunni bíllyklana en sagði henni ekki hvar bíllinn væri niður kominn. Seljandinn tjáði lögreglunni að hann ætlaði að geyma bílinn í öruggri vörslu sinni þar til málið leystist og hann fengi sitt. Kaupandi bílsins gaf skýrslu til lögreglu en hann hefur ekki kært seljandann fyrir líkams­árás né heldur stuld á bifreið.

Lögreglan hefur ekki frekari afskipti af einka­viðskiptum sem þessum nema að kæra liggi fyrir. Bíllinn umdeildi er enn í vörslu seljandans. Samkvæmt heimildum DV er nokkuð algengt að seljendur, sem telja sig svikna í bíla­viðskipum, grípi til róttækra ráða til að nálgast þau verðmæti aftur sem þeir fá ekki greitt fyrir samkvæmt samningum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning