Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Á dögunum horfðum við á eftir ungum manni ekki nema 22 ára gömlum hverfa út í myrkrið“

„Á dögunum sagði læknir nokkur hér á landi sem bæði er hugrakkur og mannvinur frá því hvernig hann og fleiri kollegar hans hafa hjálpað fólki með fíkni­vanda sem er bjarg­laust, heimilis­laust og hefst við á strætum og skúma­skotum í þerri hörmung sem er hlut­skipti fólks í þessum aðstæðum.“

Svo hefst færsla mynd­lista­mannsins Tolla Morthens á Facebook en hún hefur vakið nokkra athygli. Þar fer Tolli yfir það hvernig stríðið gegn fíkni­efnum hefur valdið þjóðinni ómældum miska. Nú sé komið gott af þeirri stefnu, með fyllingu tímans mun engin mæla henni bót.

Tolli heldur áfram: „Ég tek að ofan fyrir þessum læknum, það er ömurlegt hvað við mætum oft þessum heimilis­lausa fólki sem eru ofurseld fíkni­sjúkdómum af mikilli grimmd og fordómum eins og umræddur læknir bendir á.

Á dögunum horfðum við á eftir ungum manni ekki nema 22 ára gömlum hverfa út í myrkrið heltekinn fíkn , það var ekkert sem greip hann annað en þessi svarti straumur sem bar hann út í óminnið, það er eins og maður horfi á mann falla milli skips og bryggju þar sem hann treður marvaðann í ísköldum sjónum uns hann gefst upp og sekkur en á meðan stöndum við á bryggjunni og fylgjumst með en aðhöfumst ekkert.

Þessi ungi maður sem ég hef í huga lést af of stórum neyslu skammti aðeins 10 dögum eftir að hann féll í strauminn,“ skrifar Tolli.

Hann segir stefnuna í raun höfuðpaur glæpa­gengja, þau myndu ekki þrífast nema í skjóli hennar. „Það eru komnir brestir í þennan múr sem við köllu “ Stríð gegn fíkni­efnum“ sem hefur valdið ómældum hörmungum um heim allan og er í raun móðir stærstu glæpa­samtaka heimsins og heldur stöðugt áfram að næra harminn sem eltir fíkni­sjúklinga.

Þennan múr þarf að mola niður og lofa mannúð og samkennd streyma inn í líf þeirra sem eru háðir þessum efnum, við verðum að setja upp úrræði þar sem við hjálpum fíklum að nota efnin á öruggan hátt og stýra neyslu þeirra inn á lygnan sjó og þar má finna bata.

Valdmiðuð nálgun sem elur á ótta og fordómum mun aldrei leysa nein vandamál í mannlegri tilveru en það getur samkennd og kærleikur.

Ást og friður“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning