Stórsöngkonan Ariana Grande hætti nýverið með eiginmanni sínum og er komin með nýjan mann í líf sitt.
Sá maður heitir Ethan Slater og er þekkastur fyrir að leika Svamp Sveinsson í Broadway söngleik um svampinn þekkta. Ariana og Ethan kynntust við tökur á Wicked kvikmyndinni sem er gerð eftir Wicked söngleiknum en Ariana og Ethan fara bæði með stór hlutverk í myndinni. Ariana hætti með eiginmanni sínum Dalton Gomez fyrr á árinu en skilnaður þeirra á eftir að ganga í gegn. Ethan er sömuleiðis nýhættur með eiginkonu sinni en eignuðst þau barn saman árið 2022.
Hér fyrir neðan er mynd af Ethan þar sem hann leikur Svamp.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir