Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Sæmundur geðlæknir veldur usla með stuðningi við Pétur Örn: „Hún var orðin lögráða og lögríða“

Tón­listar­maðurinn Pétur Örn Guð­munds­son hefur verið útilokaður frá flestum verkefnum frá því að Elísabet Ormslev söngkona greindi frá því að hún hefði átt í ástar­sambandi við hann. Hún var 16 ára og hann 38 ára. Elísbet sagði frá því að Pétur hefði setið um heimili sittt eftur að sambandinu lauk.

Eftir að viðtalið birtist fyrir níu mánuðum var Pétur rekinn úr hljómsveitunum Buff og Dúndur­fréttum og hvarf algjör­lega úr sviðs­ljósinu. Í vikunni dúkkaði hann síðan upp á samfélags­miðlum er hann þakkaði fyrir afmælis­kveðjur. Þá rigndi yfir hann haturs­póstum og honum var sagt að „rotna í helvíti“ og halda sig í kjallara­holunni sinni.

Pétur birti sjálfur skila­boðin og spurði hvort líf hins út­skúfaða virki­lega að vera svona. Óhætt er að segja að þögnin sem hjúpað hefur tónlistar­manninn hafi verið rofin með miklum hvelli um helgina. Samfélags­miðlar hafa hreinlega logað.

Kærasti Elísabetar, Sindri Þór Kárason, segist undan­farið hafa fengið á sig ásakanir frá aðstand­endum Péturs Arnar Guðmunds­sonar söngvara sem oft er kallaður Pétur Jesús. Í færslu á Facebook segir Sindri Þór frá áreiti og ásökunum sem hann hefur orðið fyrir frá aðstand­endum Péturs Arnar en kærasta Sindra, Elísabet Ormslev söngkona, er dóttir Helgu Möller söngkonu sem steig líka fram um helgina og varði tengda­soninn.

Um helgina ætlaði svo allt vitlaust að verða er geðlæknirinn Sæmundur Haraldsson, sem var giftur föður­systur Pétur, tjáði sig undir færslu tónlistar­mannsins:

„Í fyrsta lagi fyrir­finnst engin kæra um ofbeldi i samskiptum Péturs og Elísabetar og hún var orðin lögráða (16 ára) og lögríða (samræðis­aldur á Islandi er 15 ára, fyrir þann aldur er um pedofiliu að ræða). Hún var mjög ung þegar þau kynntust og hann fulltiða poppstjarna, hún ómótuð grúppía. Ég er fullviss um að þau Pétur hafi átt margar unaðs­stundir saman þau 10 ár, sem þau voru saman, en svo fór að hann hitti aðra konu og hún hitti mann. Ásrsjúkur Pétur vildi nu ná tali af henni (stalking) klaufa­lega. Eftir einhliða yfirlysingu Elísabetar sem virðist sprottin úr hugmynda­fræði metoo um að skila skömminni, þá er Pétur fordæmdur, missir lifsviðurværið og alls konar folk blindað af hatri virðist helst kalla yfir hann þjáningar og dauða. Og þar er ofbeldið enn þá grofara, ég er ekki viss um að miskunnar­laus ofbeldis­hefnigirni sé það sem Elisabet vill. Það er þung byrði að bera að hata aðra og vilja þeim allt illt.“

Eldri systir Elísabetar, Maggý Möller, gerir ummæli geðlæknisins að umtals­efni í samfélagi á Facebook, Lögfræðinördar. Þar spyr hún lögfróða um laga­skilning þegar kemur að samræðis­aldri barna og ungmenna hér á landi. Þar birti hún skjáskot af ummælum geðlæknisins:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis