Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Rafn Franklín er umhverfisvænn: „Trúi að gæðameiri matvörur muni síðar meir spara mér læknakostnað“

Rafn Franklín.
Rafn Franklín.

Neytandi vikunnar að þessu sinni Rafn Franklín, þjálfari og heilsu­ráðgjafi hjá Hreyfingu heilsu­lind.  Ásamt því rekur hann einnig lítið fyrirtæki og hlaðvarp sem kallast 360 Heilsa þar sem hann fær ýmsa heilsu­sérfræðinga í viðtöl og fræðir hlustendur um leiðir til að efla heilsuna sína og lífsstíl. Hrafn býr í Garðabæ eins og er en er á leiðinni yfir í Mosfells­sveit að uppfylla lang­þráðan draum um „sveit í borg“ stemningu með stutt í náttúru, hænur í garðinum og fleira skemmtilegt.

Hvernig sparar þú í matar­innkaupum?
Ég spara yfirleitt lítið í þeirri deild. Ég fórna ekki gæðum í mat fyrir verðmiða. Ég legg áherslu á að kaupa lífrænar vörur þegar kostur gefst, kjötmeti beint frá býli eða traustum uppruna og dýrari olíur þar sem þær eru nær undan­tekningar­laust gæðameiri en þær ódýrari. Ég trúi því að meiri eyðsla í gæðameiri matvörur muni síðar meir spara mér lyfja- og lækna­kostnað.

Endur­nýtir þú? Ertu með ráð til annarra?
Já, en ég mætti eflaust gera betur í þeim efnum. Ég flokka rusl, pappa, dósir, rafhlöður og þess háttar á heimilinu. Svo förum við reglulega með illa nýttan fatnað í Rauða krossinn eða Hjálpar­starf kirkjunnar. Við höfum einnig tekið að okkur gömul húsgögn heima og gert þau upp og gefið nýtt líf ásamt fleiru. Ef ég þyrfti að gefa eitt ráð væri það einfald­lega að staldra við áður en þú kaupir eitthvað eða hendir einhverju og nota hugmynda­flugið.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?
Þegar ég versla mat eru gæði og hollusta í fyrirrúmi. Ég vel yfirleitt íslenskt fram yfir erlent og elska að versla góðar sælkera­vörur frá íslenskum smáframleiðendum.

Ég hef ekkert sérstak­lega gaman af því að versla föt og geri því lítið af því og spái ekki nógu mikið í efnum sem eru notuð eða hvaðan þau eru. Ég á þó nokkrar skyrtur og boli úr lífrænum bómul sem mér líður voða vel í. Svo á ég frábæra sæng frá lopidraumur úr 100% hreinni íslenskri ull án allra eiturefna sem er í miklu uppáhaldi hjá mér!

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?
Ætli það sé ekki græjur af allskyns tagi. Ég er pínu dellukall og fæ reglulega æði fyrir hinu og þessu. Þá á ég það oft til að sökkva mér ofan í viðfangs­efnið og kaupa mér allskyns græjur í kringum það. Yfirleitt er það þó eitthvað sem ég nýti vel en stundum eitthvað sem endar sem ryksafnari í geymslunni.

Skiptir umhverfis­vernd þig máli?
Hún gerir það klárlega og ég geri mitt besta til að leggja mitt af mörkum. Heil­brigður neytandi er umhverfis­vænni neytandi. Breytingin byrjar hjá einstaklingnum og hver ber ábyrgð á sér sjálfum.

Tökum ábyrgð á eigin heilsu og tökum meðvitaðari ákvarðanir í því sem við setjum í okkur og á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis