Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bubbi Morthens til bjargar: „Á sínum tíma bjargaði Kvennaathvarfið lífi mínu“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Í ár eru fjörutíu ár eru liðin frá stofn­fundi Samtaka um kvenna­athvarf  sem var haldinn 2. júní 1982. Kvenna­athvarfið hóf starfsemi sína 7. desember 1982. Á þeim 40 árum sem Kvenna­athvarfið hefur verið starfrækt hefur gengið á ýmsu rekstrar­lega séð. Fjárhags­legur barningur einkenndi fyrstu ár samtak­anna, sem þrátt fyrir allt lögðu og enn leggja kapp við að aðstoða konur á Íslandi að losna úr viðjum heimilis­ofbeldis.

„Hvernig fram­haldið verður veit ég ekki. Ég er orkulítil eftir þessi átök og ekki góð á taugum. Svona nokkuð tekur mjög á mann og ég óska engri konu þess að ganga í gegnum það sem ég hef þurft að gera. Og ég á ekki mörg ráð handa konum sem kunna að lenda í þessu, — og þó. Eitt ráð á ég. Kvenna­athvarfið. Ég hvet allar konur sem lenda í blindgötu heima hjá sér á einn eða annan hátt og verða fyrir kúgun á heimili sínu, að leita hiklaust til Kvenna­athvarfsins. Þar er engri konu úthýst sem á aðstoð þarf að halda. Þar er einnig gott að vera og þar eru konur sem skilja vanda­málið og hollt er að tala við. Það er ekkert vafamál að á sínum tíma bjargaði Kvenna­athvarfið lífi mínu.“ 

Framan­greindur texti eru lokaorð frásagnar konu sem varð fyrir þráfald­legum líkams­meiðingum af hendi geðsjúks eigin­manns hennar og birtust þriðjudaginn, 3. febrúar 1987 í Þjóð­viljanum.

„Aðsóknin að Kvenna­athvarfinu í Reykjavík, sem opnað var í desember 1982 bendir til þess að mikið sé um ofbeldi á heimilum hér á landi. Meirihluti kvennanna sem koma í athvarfið er eldri en 36 ára. Við vitum ekki hvort ofbeldi hefur vaxið eða minnkað, vegna þess að upplýsingar vantar frá fyrri árum,“ eftir­farandi kom fram í ársriti Kven­réttinda­félags Íslands, 19. Júní frá 1984. Þar nefndi Hildi­gunnur Ólafs­dóttir, afbrota­fræðingur meðal annars að Kvenna­athvarfið væri mikil­vægur þáttur viðspyrnu kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi þá segir Hildi­gunnur jafnframt: „Mjög mikilvægt er að konur sem hafa orðið fyrir nauðgun geti leitað til annarra kvenna og fengið stuðning. Konur verða að læra að slá til baka og búast til varnar. Kvenna­athvarfið er liður í því.“

Húsnæðisvandinn

Húsnæðis­vandi elti samtökin en föstu­daginn 8. apríl 1983 eða um það bil fimm mánuðum frá stofnun Kvenna­athvarfsins, birtist eftir­farandi í Helgar­póstinum:

Kvenna­athvarfið er nú nokkuð í sviðs­ljósinu vegna þess að það er að missa núverandi húsnæði sitt og hefur hafið söfnun til kaupa á eigin húsi. Konurnar sem stýra athvarfinu segja að reynsla síðustu mánaða hafi sýnt að mikil þörf sé á slíku húsnæði, og ekki skal það dregið í efa. Hins vegar heyrum við að ekki komi allar konur lúbarðar af mönnum sínum til Kvenna­athvarfsins. Þangað leiti ekki síður húsnæðis­lausar konur sem til dæmis eru að skilja við menn sína, eða koma utan af landi til Reykja­víkur. Heyrum við að Kvenna­athvarfið sé í hinum mestu vandræðum vegna ásóknar þessara kvenna, sem ekki þykir stætt á að vísa burt…

Sjálfstæðisflokkurinn tregir við styrkveitingu

Árið 1986 var sérstak­lega erfitt fjárhags­lega hjá athvarfinu. Í Þjóð­viljanum  8. maí 1986 er fjallað um hvernig Sjálfstæðis­flokkurinn þráaðist við að greiða út styrk til Kvenna­athvarfsins: „Borgar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins hafa enn ekki fengist til að greiða Samtökum um kvenna­athvarf 625 þúsund króna styrk sem samþykktur var við afgreiðslu fjárhags­áætlunar borgarinnar fyrir þetta ár. Á fundi borgar­ráðs í vikunni var tillögu Sigurjóns Pétussonar um að styrkurinn yrði greiddur enn frestað og verður hún ekki afgreidd fyrr en í næstu viku.“

Var einnig rætt við Ólöfu Briem sem starfaði í athvarfinu. Hún tók fram að á degi hverjum væri þar 15 – 20 börn og konur og þörfin brýn.

„Sem fyrr segir hefur tillögu Sigurjóns Péturs­sonar í borgar­ráði verið frestað tvívegis og verður ekki afgreidd fyrr en í næstu viku. Þá verða liðnir fjórir mánuðir frá því borgar­stjórn samþykkti að veita þennan styrk.“

Af fjárhags­erfiðleikum samtak­anna fór ekki varhluta í fjöl­miðlum en í dálknum Frétta­póstinum í Helgar­póstinum frá 24. júlí 1986 var stiklað á stóru og tveimur mánuðum eftir ofan­greinda frétt bólaði ekkert á styrk­veitingu frá borgar­ráði:

„Kvenna­athvarfið á hausnum 

Kvenna­athvarfið á við mikla fjárhags­erfiðleika að stríða, en tillögu minni­hlutans í borgar­stjórn um tafar­lausa greiðslu á seinni helmingi þeirra 625 þúsund króna sem athvarfið fékk úthlutað á fjárhags­áætlun borgarinnar, var vísað frá á borgar­ráðsfundi á þriðjudag. Fjárhags­staða Kvenna­athvarfsins er svo bág að ekki hefur reynst unnt að borga starfs­mönnum tilskilin laun og ekki reynst unnt að hefja lagfæringar á annars hálfónýtu húsi athvarfsins. En þótt opinberir fjár­veitinga­menn séu tregir á athvarfið sér hauk í horni sem er Bubbi Morthens en hann mun gangast fyrir tónleikum til styrktar athvarfinu. Kvenn­athvarfið fékk um 2 milljónir á fjárlögum rikisins til ráðstöfunar en gróflega áætlað vantar eina milljón upp á svo unnt reynist að starf­rækja athvarfið fram að áramótum.“

Bubbi Morthens til bjargar 

Í Tímanum, miðvikudaginn 23. júlí 1986 birtist frétt undir fyrir­sögninni „BUBBI TIL BJARGAR KVENNAATHVARFINU“. 

„Bubbi Morthens hefur ákveðið að halda styrktar­tónleika fyrir Kvenna­athvarfið í skemmtistaðnum Roxzy á föstudags­kvöld klukkan 22. Kvenna­athvarfið stendur frammi fyrir gjald­þroti, fáist ekki auknar fjár­veitingar til viðgerða og viðhalds á húsnæðinu. Nú hefur Bubbi hlaupið undir bagga með athvarfinu og vonir standa til að hann og aðrir tónlistar­menn geti bjargað Kvenna­athvarfinu undan hamrinum.“

Rætt var við umboðs­mann Bubba, Viðar Arnarson sem sagði: „Hugmyndin kviknaði þegar ég og Bubbi vorum að horfa á sjónvarps­fréttir á sunnudag og sáum frétt um vanda athvarfsins. Bubbi kveikti á þessu eins og skot og við ætlum að gera það besta úr þessu, með tilliti til þess hversu stuttan tíma við höfum til undir­búnings.“  

„Edda Scheving hjá Kvenna­athvarfinu sagði í samtali við Tímann í gær að þær væru afskaplega þakklátar. „Þegar ég frétti af þessu í gær fór ég beint heim til mín og spilaði „Konu“ með Bubba Morthens, lokaði augunum og brosti. Ég trúi þessu bara varla ennþá,“ sagði Edda. Hún taldi að þetta væri sennilega besta auglýsing sem Kvenna­athvarfið hefur fengið til þessa og hún sagðist vona að þetta „yrði til þess að opna á stjórn­völdum augun“.

Mynd/skjá­skot frá tíma­rit.is/DV Bubbi og Viðar umborðs­maður hans fengu blóm eftir fyrstu Kvenna­at­hvarfs­tón­leik­ana

Í DV, 13. október 1986 var viðtal við Viðar Arnarson umboðmann Bubba aðspurður hvort hann hafi einhverja hugmynd um hversu miklu fé þeir geti safnað: Það er erfitt að segja til um það, en við vonumst eftir að geta safnað 600.000 kr. og þá er fjárhags­vandi athvarfsins úr sögunni. Í dag hafa þær fjármagn til daglegs rekstur en það vantar pening í viðgerðir og viðhald. Þessir peningar koma því til með að tryggja rekstur athvarfsins og verða ekki aðeins gálga­frestur.“ 

Hjá sama miðli 12 dögum síðar eða 25. október 1986 segir Viðar: „Í dag vantar tæplega fimm hundruð þúsund upp á að það takist. Það skiptir engu hvaðan peningarnir koma. Þeir sem komast ekki á tónleikana geta eins sent Kvenna­athvarfinu peninga í gegnum gíró“

Draumur um hentugra húsnæði

Nú í nóvember 2022 stendur Kvenn­athvarfið fyrir söfnun vegna nýs húsnæðis og segir á heimasíðu þess:

„Okkur dreymir um að geta boðið öllum konunum okkar og börnum þeirra upp á heimili á einum stað þar sem hugað er að þeirra þörfum og hagsmunum. Því höfum við ákveðið að ráðast í byggingu nýs athvarfs sem er sérstak­lega hannað með það í huga að sinna á einum stað þeirri fjöl­breyttu þjónustu sem við veitum. Með nýju húsnæði getum við einnig stórbætt aðgengi okkar sem því miður er ekki gott í núverandi húsnæði.

Fengist hefur fjármagn frá ríkinu til að koma verk­efninu af stað, en við þurfum á stuðningi allra lands­manna að halda til að nýtt athvarf geti orðið að veruleika. Í byrjun nóvember verður lands­söfnun í byggingar­sjóð fyrir nýju athvarfi á Stöð 2, en fram að þeim tíma verða fjölmargar aðgerðir í gangi til að afla fjár til byggingar á nýju athvarfi.

Söfnunin er tvíþætt, annars vegar verður óskað eftir styrk­loforðum frá einstaklingum og fyrir­tækjum og hins vegar verður haldið listmuna­uppboð, þar sem fólki gefst tækifæri á að gefa og kaupa listmuni, þar sem ágóðinn rennur óskiptur til söfnunarinnar.

Það er einlæg ósk okkar að landsmenn leggist á árarnar með okkur og aðstoði okkur við að reisa nýtt, vel búið Kvenna­athvarf þar sem allar konur sem þurfa á okkur að halda og þeirra börn, verða boðnar hjartanlega velkomnar.“

Hér er hægt að kynna sér styrktar­leiðir Kvenna­athvarfsins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning