Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Manndráp í Torrevieja – Guðmundur Freyr grunaður um að hafa orðið stjúpföður sínum að bana

Mynd / Wikimedia Commons – Ezarate|Guðmundur Freyr
Mynd / Wikimedia Commons – Ezarate|Guð­mundur Freyr

Sverrir Örn Olsen fannst látinn á heimili sínu í Torrevieja á Spáni aðfarar­nótt sunnu­dagsins 12. janúar, hann var 65 ára að aldri.

Þegar lögregla kom á vettvang var Sverrir Örn látinn. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er Guðmundur Freyr Magnússon, stjúpsonur Sverris Arnar, í haldi lögreglunnar í Torrevieja, en hann er grunaður um að hafa orðið Sverri Erni að bana. Sverrir Örn var sambýlis­maður móður Guðmundar Freys, Kristínar Guðmunds­dóttur og höfðu þau öll búið á Spáni í nokkurn tíma.

Tor­revi­eja og svæðið í kring er eftir­sóttur staður fyrir Íslendinga, bæði til lengri og styttri dvalar, og hafa margir Íslendingar keypt sér eignir á svæðinu og flutt þangað alfarið.

Átök leiddu til bana

Norski miðillinn SpaniaAvisen fjallar um málið í dag. Þar kemur fram að gerandinn hafi ruðst inn á heimili móður sinnar og stjúpföður í Los Balcones-hverfinu í Torrevieja. Til átaka hafi komið á milli mannanna tveggja sem lauk með því að gerandinn hafi hrint stjúpföður sínum á glugga með þeim afleiðingum að glugginn hafi brotnað. Við það hafi fórnar­lambið hlotið marga skurði, missti mikið blóð og látist.

Samkvæmt upplýsingum SpaniaAvisen voru stungusár á líkama hins látna sem ekki voru vegna glerbrota úr glugganum. Beðið er niður­stöðu krufningar.

Guð­mundur Freyr Mynd / Facebook

Margdæmdur á Íslandi

Guðmundur Freyr sem grunaður er um að hafa orðið sambýlis­manni móður sinnar að bana er nýlega orðinn fertugur. Frá 16 ára aldri hefur hann minnst átta sinnum verið dæmdur til refsivistar fyrir hegningar­lagabrot, fíkniefna­brot, tolla­lagabrot, lyfsölu­lagabrot og skotvopna­lagabrot. Þann 19. desember 2007 var Guðmundur Freyr dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa kveikt í parhúsi á Þorláks­höfn. Kona og tvö börn voru sofandi í hinum hluta parhússins þegar Guðmundur lagði eld að húsinu. Í sama dómi var Guðmundur Freyr dæmdur fyrir rán vopnaður hnífi, fjársvik, ölvunar­akstur og vörslu fíkniefna.

Stórslasaður eftir alvarlegt bílslys

Í byrjun árs 2018 lenti hann ásamt móður sinni og þremur öðrum Íslendingum í alvarlegu bílsslysi á Spáni. Guðmundur Freyr stórslasaðist og í fyrstu var talið að hann væri lamaður, svo reyndist þó ekki vera, en hann hlaut þó alvarlega áverka á taugum og mænu og ljóst var að langt bataferli var framundan.

Í viðtali við DV í mars 2018 sagði Kristín, sem sjálf tognaði illa í baki í slysinu, um meiðsl Guðmundar Freys: „Hann getur hreyft tærnar og lyft hnjánum. Svo tók læknirinn hann fram úr rúminu í dag [síðastliðinn mánudag, innsk. blm.] og hann reyndi að stíga hænuskref úr rúminu og aftur upp í. Síðan kom baksérfræðingur til að meta tauga­skaðann, sem er mikill. Hann virðist ekki vera lamaður en það er ekkert sem þeir geta sagt með vissu. En hversu mikið þetta gengur til baka vitum við ekki. Þetta er heil­mikill skaði.“

Var andlát bróður Guðmundar slys eða manndráp?

Fleiri áföll hafa dunið yfir fjöl­skylduna á síðustu árum. Bróðir Guðmundar Freys og sonur Kristínar, Þorvaldur Magnason, fannst látinn í Foss­vogsdal 12. desember 2017, en hann var á leið til Spánar daginn eftir. Samkvæmt rannsókn  lögreglu benti ekkert til að neitt saknæmt hefði átt sér stað. Kristín og aðrir aðstand­endur voru hrædd um að Þorvaldi hefði verið ráðinn bani, þar sem áverkar voru á líkinu og hann hafði sætt hótunum dagana fyrir andlátið. Þorvaldur var fíkill og fór Kristín ekki leynt með þá staðreynd en sagði son sinn hafa verið lífs­glaðan og skemmtilegan mann. Eftir andlát hans tjáðu margir sig á samskipta­miðlum um mannkosti Þorvaldar og ljóst að hann átti marga vini og kunningja.

„Það er greini­lega ekki nóg á mann lagt að Valdi minn kvaddi þennan heim 12. desember og svo þetta núna. Ég veit ekki hvar þessi martröð endar. Maður er ekki búinn að jafna sig á einu áfallinu þegar það kemur annað. Það er engin hætta á því að ég sé að fara að yfirgefa hann fyrr en hann getur bjargað sér sjálfur,“ sagði Kristín um son sinn, Guðmund Frey eftir bílslysið í byrjun árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra