Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brynjar hjólar í Eddu Falak: „Keppast hver við annan að niðurlægja stúlkur“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson vara­þingmaður telur tilefni til þess að kenna öðrum hvernig eigi að fara með hæðni. Á Facebook skrifar hann: „Hæðni er vandmeðfarin og við erum mis viðkvæm þegar hún beinist að okkur sjálfum. Sumir eru mjög viðkvæmir fyrir glensi og jafnvel fyrir hönd annarra, til dæmis ýmissa minnihluta­hópa, eins og hörunds­dökka, transfólk, samkyn­hneigða og annað fólk sem er öðruvísi en fjöldinn og því í viðkvæmri stöðu. Er það mjög skiljanlegt.“

Brynjar segir þó til góða hæðni og vonda hæðni. „Það er nú samt svo að maðurinn er spaugilegt fyrirbæri. Ef við hættum að gera grín hvert að öðru erum við dauðans matur, að minnsta kosti andlega.  En hæðni er ekki sama og hæðni. Það er nefnilega til góð hæðni og vond hæðni, alveg eins og það er til gott fólk og slæmt fólk. Ekkert af okkur mann­fólkinu er þó fullkomið og við gerum öll mistök í lífinu. Þess vegna er fyrirgefningin mikilvæg,“ segir Brynjar.

Að lokum kemur hann sér að efninu, honum þyki illa farið með tilvon­andi fegurðar­drottningar Íslands. Líkt og DV greindi frá fyrr í dag þá hafa margir á Twitter gert grín að hópmynd fegurðar­dísanna. Þar á meðal Edda Falak.

„Ágætt væri ef við gætum dregið úr vondu hæðninni. Vond hæðni er sú sem hefur þann tilgang að niður­lægja fólk og er sett fram af andúð, illgirni og fórdómum. Tilefni þessarar færslu er að ég tók eftir því á samfélags­miðlum að margir þeirra sem eru alla jafna hvað mest móðgaðir og misboðið yfir glensi annarra keppast hver við annan að niður­lægja með hæðni stúlkur sem keppa í fegurðar­samkeppni Íslands,“ skrifar Brynjar.

Hann segist hafa séð eftir því síðast þegar hann gerði grín af áhrifa­völdum. „Einhverjum kann að finnast þessi boðskapur koma ur hörðustu átt. Kannski er ég ekki alsaklaus en man þó bara eftir einu glensi þar sem ég gerði hallærislegt grín að áhrifa­völdum. Baðst afsökunar á því daginn eftir.“

Á Twitter er hins vegar grínast með þessa sömu gagnrýni á Eddu. Nú sé bara búið að slaufa henni fyrir að styðja ekki allar konur. „Jæja þá er maður ekki lengur ehv svaka woman’s supporter,“ skrifar Edda sjálf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá