Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sævar Pétursson býður sig fram til formanns KSÍ: „Málið var allt illa unnið síðasta haust“

„Nei það tel ég ekki, hef gagnrýnt það áður og hef ekki skipt um skoðun. Málið var allt klaufa­lega og illa unnið síðasta haust. Þannig að það sé sagt að þá erum við ekki að tala um sitjandi formann heldur þann formann sem vék vegna málsins,“ segir Sævar Pétursson sem býður sig fram til formanns KSÍ en líkt og Mannlíf greindi frá í dag þá fer formanns­kjörið fram í lok mánaðarins. Sævar var spurður að því hvort núverandi stjórn hafi tekið rétt á þessum málum sem upp komu varðandi meint ofbeldi og kynferðis­brot nokkurra leikmanna íslenska karla­lands­liðsins í knatt­spyrnu.

Sævar hefur haft í nægu að snúast undan­farna daga og situr nú hvern framboðs­fundinn á fætur öðrum um allt land en Mannlíf náði tali af honum nú undir kvöld þar sem hann var á leiðinni á fund í Hvera­gerði.

„Ég var á fundi á Teams þegar þú hringdir áðan og þess vegna skellti ég á þig,“ sagði Sævar og hló þegar blaða­maður spurði hvers vegna sambandið hefði slitnað tvisvar sinnum í röð þegar hringt var í hann. Sævar er fæddur á Húsavík, alinn upp á Vopna­firði og Laugum, bjó lengi í Kópa­voginum en hefur síðustu fimmtán ár búið á Akureyri. Þar hefur hann meðal annars gegnt stöðu framkvæmda­stjóra KA við góðan orðstír. Sævar má telja sig ríkan, burt séð frá því hvað efnislegar eignir varðar, því hann á fjögur falleg börn – þrjá stráka og eina stelpu: „Eigin­konan mín er svo fædd og uppalin á Akureyri.“

En að máli málanna, líkt og blaða­maður Mannlífs orðaði það við Sævar nú undir kvöld en það eru tíðrædd meint kynferðis­brot nokkurra leikmanna lands­liðsins. Ekki var komist hjá því að spyrja hvort til væru ferlar hjá KSÍ sem tækju á svona málum sem upp kæmu hjá leik­mönnum landsliða, og í raun annarra félags­liða ef út í það er farið. Sævar segir það stóra vanda­málið í þessu öllu: „Það virðist ekki vera svo og það er stóra vanda­málið í þessu öllu. Aðilar brugðust illa við því verk­ferlar voru ekki til og fóru að vinna í málum sem eiga ekki heima inn í stjórnum eða ráðum hjá íþrótta­hreyfingunni.

„Gríð­ar­lega sorg­legt og ógeð­fellt mál“

Fréttir af knattspyrnu­stjörnunni Mason Greenwood skóku allan heiminn um daginn þegar upptökur af honum þar sem hann, að því er virðist, vera að nauðga kærustu sinni og beita hana ofbeldi.

Spurður út í þessar fréttir og hvort íþrótta­hreyfingin þurfi mögulega í heild sinni að setja í gang einhvers konar forvarnir og fræðslu fyrir unga íþrótta­iðkendur þegar það kemur að háttvísi, innan vallar sem utan segir Sævar: „Þetta er gríðar­lega sorglegt og ógeðfrellt mál. Hvort íþrótta­hreyfingin þurfi að bregðast við er stór spurning. Við sem samfélag þurfum að taka á slíkum málum og skiptir þá engu máli hvort þú komir úr íþróttum, atvinnu­lífi eða skólum. Slík hegðun sem þú vísar til er óásættanleg og á ekki að líðast í okkar samfélagi.“

Sævar virðist ekki spenntur fyrir því að gagnrýna mótframbjóðanda sinn, að minnsta kosti hefur hann ekki gert það í þeim viðtölum sem blaða­maður Mannlífs hefur heyrt við hann tekin. En ef hann er ekki gagnrýnin á störf Vöndu Sigur­geirsdóttur af hverju er hann þá yfir höfuð að bjóða sig fram? Hann hljóti að telja sig betur til þess fallinn að stýra sambandinu en Vanda?

„Já, mér finnst leiðinleg pólitík eða venja að þurfa alltaf að níða skóinn af þeim aðila sem maður er í samkeppni við. Vanda er ekki manneskja sem á eitthvað illt skilið frá mér. Ég hef þekkt hana í mörg ár og ber virðingu fyrir henni. Að því sögðu þá get ég á sama tíma haft trú á því að ég geti verið betur til þess fallinn að stýra KSÍ  en þá á mínum forsendum en ekki hennar göllum. Það er svipað og í fótboltanum, ég get borið mikla virðingu fyrir andstæðingnum en á sama tíma haldið að ég sé betri en hann og unnið baráttuna,“ segir Sævar og bætir við að hann sjái fyrir sér starf formanns KSÍ sem bæði spennandi og krefjandi en á sama tíma mjög skemmtilegt.

Elskar fiski­bollur og heldur með Liverpool

„Ég hef alla tíð haft mikla ástríðu fyrir íþróttum og að fá að leiða knattspyrnu­sambandið væri frábær heiður,“ segir Sævar sem hefur haft gríðar­legan áhuga á knatt­spyrnu frá blautu barns­beini.

„Já ég brenn fyrir íslenskan fótbolta og vil færa fókusinn aðeins meira á það sem er verið að gera í félögunum hérna heima. Það hefur verið aðeins meiri þungi á landsliðs­málum undan­farin ár og kannski eðlilega eftir svona mikla velgengni en ég trúi því að slíka velgengni komi í upphafi frá góðu starfi félaganna. Þar höfum við aðeins gleymt okkur síðustu ár og þar vil ég reyna eftir bestu getu að leggja fleiri lóð á voga­skálarnar.“

Sævar elskar fiskibollur og á erfitt með að svara þeirri spurningu með hvaða liði hann heldur í ensku deildinni en gerir að þó að lokum og hlær: „Nú gæti ég tapað fullt af atkvæðum en mitt lið í enska er Liverpool.“ Spurður hvort hann sé farinn að leita að húsnæði fyrir fjöl­skyldu sína á höfuð­borgar­svæðinu þá segist Sævar ekki hugsa lengra í bili en fram á laugardag, þegar formanns­kjör KSÍ fer fram.

Sævar og fjöl­skylda

„Fjöl­skyldan styður  mig í þessari baráttu minni og er öll á bakvið mig. Ég er samt ekki að hugsa mikið lengra en fram á laugardag. Ef ég verð svo heppinn að verða kjörinn formaður þá setjumst við niður sem heild og skipuleggjum okkur út frá þeirri niður­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur