Lyfjastofnun Evrópu,
EMA
, heimilaði í dag notkun Paxlovid, lyfs í töfluformi sem á að draga úr líkum þess að fólk í áhættuhópi lendi á sjúkrahúsi eða deyi af völdum COVID-19. Fyrirtækin Pfizer og BioNTech þróuðu lyfið.Notkun þess var heimiluð í Bandaríkjunum skömmu fyrir jól. Paxlovid virkar að sögn sérfræðinga því aðeins ef það er tekið innan fimm sólarhringa frá því að sjúklingur smitast af kórónuveirunni.
Lyf í töfluformi þykja mun handhægari í baráttunni við COVID-19 heldur en bóluefni. Töflurnar eru ódýrari og fólk getur tekið þær heima, reynist það smitað af veirunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir