Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hvað varð um hinn 19 ára Michael Leduc? – Ætlaði að ferðast um Ísland en hvarf á Hvolsvelli

Michael Leduc
Michael Leduc Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn 19 ára Frakki, Michael Leduc, kom til Íslands í september byrjun árið 1997 og ætlaði sér að ferðast um landið í rútu, 20.000 krónur í gjaldeyri. Þann 6. september steig hann úr rútu við Hvolsvöll en virtist svo hverfa af yfirborði jarðar.

Hinn ungi ferða­maður, sem búsettur var í París, hafði keypt sér rútumiða sem gerði honum kleyft að ferðast um Ísland frá 3. til 16. september en þann sjötta september sást hann fara úr rútunni við Hvolfs­völl en talið var að hann hefði ætlað sér að vaða yfir Markar­fljót til að komast í Þórsmörk. Þrátt fyrir gríðar­mikla leit sem meðal annars fól í sér notkun svif­nökkva, en þetta var fyrir tíma flygilda (e. drones), fannst hvorki tangur né tetur af Leduc. Að minnsta kosti ekki fyrr en hálfu ári síðar.

Tíminn Akureyri fjallaði um hvarf Leduc á sínum tíma:

Lýst eftir Frakka

Leitin að Michael Leduc, 19 ára gömlum frönskum ferða­manni, hafði enn engan árangur borið í gærkvöld. Síðast var vitað um ferðir hans með áætlunarbíl frá Reykjavík til Hvols­vallar 6. september sl. Þar fór hann úr bílnum og er ekkert vitað um ferðir hans eftir það. Michael Leduc er með dökkt stutt hár, 1.82 cm á hæð, grann­vaxinn og gæti verið klæddur í rauða úlpu og brúna gönguskó. Hann er með grágrænan bakpoka og dökkgrænt tjald.

Dagblaðið Vísir sagði frá þeirri miklu leit sem ráðist var í til að finna hinn unga Frakka en leitað var í og við Markar­fljót:

Franski ferða­maðurinn: Leitað í og við Markar­fljót

Slysavarna­sveitirnar Dagrenning Hvols­velli og Björg á Eyrar­bakka hófu leit að franska ferða­manninum Michael Leduc eftir hádegi í gær. Leitin hafði engan árangur borið þegar blaðið fór í prentun. Leitar­svæðið er takmarkað við Markar­fljót og bakka þess. Svif­nökkvi var notaður við leitina gær en hann má nota bæði á láði og legi. Að sögn Jóns Hermanns­sonar, svæðis­stjóra slysavarna­sveitanna, höfðu engar vísbendingar fundist þegar DV ræddi við hann. Var gert ráð fyrir að leitað yrði fram í myrkur gærkvöld. í gær hafði því ekkert spurst til franska ferða­mannsins frá því að hann yfirgaf rútuna á Hvols­velli 6. september sl., utan að ökumaður einn telur sig hafa séð hann standa úti vegkanti um 2-300 metra frá Hvols­velli þann sama dag. Hafi hann verið að reyna að stöðva bíla sem voru austur­leið. Í nótt ætluðu hjálpar­sveitarmenn úr Hafnar­firði að vera með sporhund á svæðinu en það þótti ekki líklegt til árangurs í gær þar sem umferð var mikil. Í morgun ætluðu allar björgunar­sveitir í Rang­árvalla­sýslu að hefja leit. Var fyrir­hugað að auka umfang leitarinnar verulega og nota m.a. þyrlu Landhelgis­gæslunnar ef veður og aðstæður leyfðu. Þá var fyrir­hugað að nota svokallaða víðavangs leitar­hunda við leitina.

Dagblaðið Vísir sagði frá því að þrátt fyrir að maður teldi sig hafa tekið Leduc upp í bíl sinn þann 9. september á Fáskrúðs­firði og hafa ekið honum á Reyðar­fjörð, taldi yfir­lögreglu­þjónninn Jónas Hallsson ólíklegt að hann hefði farið austur.

Franski ferða­maðurinn: Ólíklegt að hann hafi farið austur

„Það sem margir sem telja sig hafa séð Michael Leduc, meira að segja í rútubfl frá Akureyri. En hann var á tímamiða og sá miði hefur ekki verið notaður nema austur á Hvolsvöll. Þá hefur hann ekkert notað visa-kortið sitt, nema til úttektar á 20.000 krónum í gjaldeyri. Þetta segir okkur að það sé ólíklegt að hann hafi farið austur á land,“ sagði Jónas Hallsson yfir­lögreglu­þjónn um franska ferða­manninn Michael Leduc sem leitað hefur verið að undan­förnu. Jónas sagði nokkuð ljóst að Frakkinn hefði ætlað sér að skoða Landmanna­laugar, Þórsmörk, Skafta­fell og Mývatn. Þegar Þórsmerkur­kortið sé skoðað geti ókunnugir hæglega villst á þessum slóðum og talið eðlilegast að fara Fljóts­hlíðina. Sá sem fari þá leiö komi síðan að Markar­fljóti sem sé hættulegt yfir­ferðar. Eins og fram kom í DV í gær telur Jóhann Pétur Halldórsson að hann hafi tekið ferða­manninn upp í bíl sinn 9. sept. sl. á Fáskrúðs­firði. Hann kveðst hafa ekið manninum á Reyðar­fjörð síðdegis þann dag. Hefði honum helst skilist að maðurinn væri á leið til Norð­fjarðar, því hann hefði spurt um ferðir áætlunar­bíls þangað. Aðspurður kvaðst maðurinn hafa komið austur daginn áður (þ.e. mánudaginn 8. sept.) Að sögn Jónasar Halls­sonar verður leitað á fjörum í ósum Markar­fljóts þegar-veður leyfir.

Þann 1. október 1997 sagði Morgun­blaðið frá því að leitinni yrði líklegast hætt en ekkert hafði þá spurst til Leduc frá 6. september. Enn þann daginn í dag hafa líkams­leifar hins unga ferða­langs ekki fundist.

Leitinni líklega hætt

LEIT að Michael Leduc, 19 ára Frakka sem ekkert hefur spurst til frá 6. september, verður að líkindum hætt í dag. Frakkinn átti rútumiða, sem hann gat notað til að ferðast um landið frá 3. til 16. september, en nýtti aðeins ferðina til Hvols­vallar. Leitar­menn hafa miðað við að hann hafi gengið inn Fljóts­hlíð og ætlað að vaða Markar­fljót til að komast í Þórsmörk. Jónas Hallsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn í Reykjavík, sagði að fólk víða um land teldi sig hafa séð Michael Leduc, en ekki hefði verið hægt að staðfesta þær frásagnir. Í dag, miðvikudag, yrði farið enn á ný yfir öll gögn málsins, en að því loknu yrði leit líklega hætt.

Unnusta Frakkans skrifaði fallega kveðju til hans sem birtist í Lesbók Morgun­blaðsins í nóvember 1997, í þýðingu Ásdísar Magnúsdóttur:

MARIANNE PIDOUX TIL MICHAELS Ásdís Magnúsdóttir þýddi

Blíði vinur, Fyrst tókst þú þér ferð á hendur, fyrst leið þín virðist ekki liggja til baka, lærir buguð sál mín tónstiga hinnar sönnu þjáningar. Þetta litla þráláta stef, sem minningarnar búa til, segir mér, segir mér aftur og segir mér enn aftur að við lifum ekki lengur undir sama himni. Í seinasta skipti legg ég höfuð mitt í kjöltu þér, ég andvarpa djúpt og í draumi gef ég þér seinustu ráðin, ferð þín er svo löng. Allt hér minnir á hamingju okkar og á hverjum morgni gæli ég við bros þitt, alltaf eins, bros þitt rólegt og kalt eins og strendur íslands. Höfundurinn er unnusta unga Frakkans, Michael Leduc, sem hvarf á Íslandi í september.

Það var svo hálfu ári síðar, 28. apríl 1998, að lík fannst á Kross­áraurum neðan við Bása í Þórsmörk. Var þar um hinn unga Michael Leduc að ræða.

Þórsmörk Líkfundur við Krossá

LÍK fannst á Kross­áraurum neðan við Bása í Þórsmörk í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelii er talið líklegt að þar sé kominn fram Frakkinn, sem leitað var að í haust. Um páskana fannst bakpoki við ána, sem gat átt við lýsingu á bakpoka Frakkans en pokinn var tómur. Um helgina leitaði lögreglan á Hvols­velli ásamt björgunar­sveitinni á Hvols­velli við ána og fannst þá svefnpoki og tjald. Það var svo í gær að þyrla var fengin til að fljúga yfir svæðið og þá fannst líkið á Kross­sáraurum í uppþornuðum farvegi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni