Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins sýknaður

Kári Jónasson – sem starfaði lengi sem frétta­stjóri á frétta­stofu útvarps og var um tíma ritstjóri Frétta­blaðsins – var sýknaður vegna ummæla um Ferða­málaskóla Íslands, eins og fram kemur á RÚV.

Kemur fram að Kára var stefnt vegna ummæla sem hann viðhafði í sjónvarps­þætti um Ferða­málaskóla Íslands; þá var hann meðstjórnandi í Félagi leið­sögumanna.

Lands­réttur staðfesti sýknu­dóminn yfir Kára, sem var kærður fyrir meiðyrði gegn Mennta­miðstöðinni, sem krafðist þess að ummæli sem Kári lét falla í þættinum „Ferða­lagið“ á sjónvarps­stöðinni Hringbraut, sem var á dagskrá 4. nóvember árið 2016, væru dæmd dauð og ómerk; auk þess var farið fram á skaða­bætur.

Áðurnefnd Ummæli Kára sneru að Ferða­málaskóla Íslands – sem Mennta­miðstöðin rekur; sótti miðstöðin málið á þeim grund­velli að ummælin hafi mátt skilja og túlka sem að leiðsögumannanám á vegum skólans væri ekki kennt samkvæmt námskrá menntamála­ráðuneytisins:

„Okkur finnst dálítið skrýtið af hverju þessi skóli getur ekki kennt samkvæmt námskrá menntamála­ráðuneytisins,“ sagði Kári í þættinum áður­nefnda.

Á þeim tíma var Kári meðstjórnandi í Félagi leið­sögumanna og Mennta­miðstöðin krafðist þess að hann greiddi skaða­bætur upp á tvær og hálfa milljón króna vegna ummælanna.

Einnig var þess krafist að Kári greiddi máls­kostnað í héraði sem og Lands­rétti.

Auk sýknudóms krafðist Kári að Mennta­miðstöðin greiddi máls­kostnað hans á báðum dómstigum.

Kemur einnig fram að þátturinn hafi verið kynntur með þeim hætti að þar yrði rætt um leið­sögumenn; sér í lagi þá sem hefðu enga menntun til að gegna leiðsögu­mennsku.

Viðmælendurnir í þættinum voru tveir. Kári og starfandi formaður Félags leið­sögumanna.

Í kynningu þáttarins kom fram að viðmælendurnir tveir gagnrýndu það að ekki væri búið að löggilda starfs­heiti leið­sögumanna.

Ummæli Kára voru svar við spurningu stjórn­andans um það hvort Ferða­málaskóli Íslands hafi hlotið viðurkenningu menntamála­ráðuneytisins.

Svar Kára í heild sinni var:

„Nei, já, okkur hefur gengið illa að ná sambandi við forystu­menn þess skóla en það getur verið að það séu margir hæfir og góðir menn sem að kenna þar og allt það, en okkur sárnar það og okkur finnst dálítið skrýtið af hverju getur þessi skóli ekki kennt samkvæmt námskrá menntamála­ráðuneytisins.“

Úrskurður Lands­réttar var sá að staðfesta sýknu héraðs­dóms á grund­velli tjáningar­frelsis; mat dómurinn það að ummælin hefðu verið hluti af opinberri umræðu um menntamál leið­sögumanna á árinu 2016. Vegna þess yrði Kára játað nokkuð vítt svigrúm til tjáningar, þar sem orð hans beindust að atvinnu­fyrirtæki en ekki einstaklingi, yrði það að þola meiri gagnrýni.

Einnig að þá væri það yfir vafa hafið að full­yrðing Kára um að skólinn kenndi ekki samkvæmt námsskrá menntamála­ráðuneytisins væri sönn.

Engin námskrá var þó í gildi fyrir leið­sögunám á þessum tíma; auk þess er Ferða­málaskóla Íslands í sjálfvald sett hvort skólinn leitar opinberrar stað­festingar á námi sínu, enda sé hann einka­skóli.

Á þaðmá þó benda að svo segir í dómnum að ekki verði annað ráðið af gögnum málsins en að aðrir skólar sem menntuðu leið­sögumenn sína á þessum tíma hafi gert ríkari menntunar­kröfur við inntöku í námið.

Varð niður­staðan sú að staðfesta sýknu­dóminn úr héraði; Lands­réttur dæmdi Mennta­miðstöðina til að greiða tvær milljónir króna í máls­kostnað Kára á báðum dóms­stigum málsins.

Eins og áður sagði starfaði Kári lengi við fjölmiðla. Hann var árið 1973 ráðinn á Frétta­stofu Útvarps; varð vara­frétta­stjóri sjö árum síðar og frétta­stjóri Útvarps á árunum 1987 til 2004, en þá gerðist hann ritstjóri Frétta­blaðsins; gegndi því starfi fram á árið 2007 er hann lét af störfum sem blaða- og frétta­maður.

Síðustu ár hefur Kári einbeitt sér að starfi sem leið­sögumaður fyrir erlenda ferðamenn hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis