Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Áfengisneysla eldra fólks vaxandi og stærra vandamál en talið er

„Stór hluti af þessu er svo falinn, líka fyrir okkur“

„Baby boomer“ kynslóðin og áfengi
„Baby boomer“ kyn­slóðin og áfengi Breytt menn­ing og aukið aðgengi skapar vanda Mynd: Unsplash/Centre for ageing better

Áfengis­neysla meðal eldra fólks á Íslandi er vaxandi vandamál og fer að miklu leyti fram í felum. Þetta segir Ingibjörg Guðmunds­dóttir, hjúkrunar­fræðingur og lýðheilsu­fræðingur hjá Heilsu­gæslunni í Garðabæ í viðtali við Tímaritið Sjúkra­liðinn. Ingibjörg, sem stundar klínískt meistaranám í heilsugæslu­hjúkrun, hefur kynnt sér ítarlega innlendar og erlendar rann­sóknir á þessu sviði og segir að ástandið sé líklega verra en almenningur geri sér grein fyrir.

„Stór hluti af því er svo falinn, líka fyrir okkur,“ segir Ingibjörg þegar hún er spurð hvort vanda­málið sé jafn stórt og af er látið. „Þegar við eldumst breytist líkami okkar og líkams­starfsemi sem veldur því að við þolum áfengi verr líkamlega og áhrifin verða meiri á líkamann en áður.“

„Baby boomer“ kynslóðin og breytt áfengismenning


Að sögn Ingibjargar má rekja aukninguna meðal annars til kynslóða­breytinga og þeirrar markaðs­setningar sem dunið hefur á þeim hópum sem nú eru að fara á eftirlaun, svokölluðu „Baby boomer“ kynslóðinni. Þessi hópur var á miðjum aldri þegar bjórinn var lögleiddur á Íslandi árið 1989.

„Áfengis­neysla var tengd við lúxus, að gera vel við sig, maður var ‚fínni‘ ef maður kunni að drekka og svo átti það að vera gott fyrir heilsuna í hófi,“ útskýrir hún og bendir jafnframt á að aðgengi hafi aukist gríðar­lega, sérstak­lega með tilkomu heimsendingar­þjónustu allan sólar­hringinn. „Þetta aukna aðgengi kemur verulega niður á þeim sem eru veikir fyrir áfengi, einmana eða með skert hugar­starf. Við verðum að muna að áfengi er ekki venjuleg neyslu­vara.“

Alvarlegar afleiðingar og tíð föll


Afleiðingar drykkjunnar á eldri borgara eru marg­víslegar og alvarlegar. Þar sem nýru og lifur starfa hægar er líkaminn lengur að vinna úr áfenginu. Eitt glas af víni hefur því mun meiri áhrif á jafnvægi og samhæfingu hjá 75 ára einstaklingi en þeim sem yngri eru. Þá getur áfengi truflað virkni lyfja, skert minnið, aukið líkur á þvagleka og svima ásamt því að ræna fólk svefni og vöðva­styrk.

Áhrifin sjást greini­lega á vöktum heilsu­gæslunnar. „Við fáum mikið af eldra fólki, konur og karla til okkar á vaktina sem hefur verið að hrasa, hrufla sig eða með skurði á höfði. Oft eru þetta sömu einstaklingarnir sem eru að koma aftur og aftur, jafnvel undir áhrifum,“ segir Ingibjörg.

Skimtæki og fordómaleysi á heilsugæslunni


Ingibjörg kallar eftir vitundar­vakningu og skerðingu á aðgengi fremur en aukningu. Hún telur að lykillinn að úrbótum innan heilbrigðis­kerfisins felist í fræðslu og að þora að taka samtalið. Þróunar­miðstöð íslenskrar heilsu­gæslu styðst nú við sérstök skimtæki á borð við AUDIT og SMAST-G, sem er sérhannað fyrir eldra fólk.

„Það mikil­vægasta er að spyrja alla út í áfengis­neyslu og gera það á fordóma­lausan hátt. Það eitt að spyrja opnar á samtalið um áfengi, gefur fólki leyfi til að spyrja og getur látið það endur­skoða neyslu sína þó að maður geri ekki neitt meira.“

Framtíðar­draumur Ingibjargar er að heilsu­gæslan ráði til sín áfengis­ráðgjafa sem vinni í teymi með læknum og öldrunar­hjúkrunar­fræðingum og að hægt verði að bjóða upp á afeitrunar­meðferð og eftir­fylgni í heima­húsum. Hún bendir einnig á mikilvægi sjúkra­liða sem starfa í mikilli nálægð við sjúklinga og eru í kjörstöðu til að ræða þessi mál af fordóma­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning