Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Matthew McConaughey er miður sín vegna skotárásarinnar: „Þetta er faraldur sem við getum stjórnað“

Matthew McConaughey
Matthew McConaughey Mynd: Nathan Congleton

Texas­búinn og stór­leikarinn Matthew McConaughey er miður sín eftir skot­árásina sem gerð var í grunn­skóla í heimabæ hans Uvalde í Texas í gær þar sem 19 börn og þrír full­orðnir létust.

Matthew skrifaði tilfinninga­ríka færslu á Instagram-reikning sinn í nótt að íslenskum tíma, þar sem hann biðlar til landa sinna um að hjálpast að við að laga samfélagið.

„Eins og þið vitið öll, varð enn ein fjölda­skotárásin gerð í dag, í þetta skiptið í heimabæ mínum, Uvalde í Texas. Enn og aftur höfum við á hryllilegan hátt, sannað að við erum að mistakast að nota réttindin sem frelsi okkar gefur okkur, á ábyrgan hátt. Hið sanna ákall til aðgerða er sú að allir Ameríkanar horfi vel og lengi í spegilinn og spyrji okkur sjálf hvað sé okkar sanna gildi? Hvernig lögum við vanda­málið? Hvaða litlu persónu­legu fórnir getum við tekið í dag, til að varðveita heilbrigðari og öruggari þjóð, ríki og hverfi morgun­dagsins? Við getum ekki andvarpað enn einu sinni, komið með afsakanir og sætt okkur við að svona skot­árásir sé eðlilegt ástand.“

Matthew hélt áfram og sagði það mjög mikilvægt fyrir þjóðina að finna sameiginlegan grundvöll til að takast á við vandann.

„Sem Ameríkanar, Texasbúar, mæður og feður, er kominn tími fyrir okkur að endurmeta og endur­semja um það hvað við viljum og hvað við þurfum. Við verðum að endur­skipuleggja gildi okkar og finna sameiginlegan grundvöll ofar þessum hrotta­lega ameríska veruleika sem því miður er orðið að máli barnanna okkar.“

Sagði leikarinn vinsæli að þetta sé faraldur sem ameríkanar geti stjórnað.

„Þetta er faraldur sem við getum stjórnað og það er alveg sama hvoru megin við stöndum í málunum, við vitum öll að við getum gert betur. Við verðum að gera betur. Aðgerða er þörf til að koma í veg fyrir að nokkurt foreldri þurfi að upplifa það sem foreldrar í Uvalde og aðrir á undan þeim hafa þurft að þola.“

Að lokum beindi hann orðum sínum að aðstand­endum þeirra er létu lífið í skot­árásinni.

„Og til þeirra sem keyrðu ástvinum sínum í skólann í dag án þess að vita að þetta væri kveðju­stund: engin orð geta náð utan um né heilað tap ykkar en ef bænir geta fært ykkur huggun munum við halda þeim gangandi.“

Ljósmynd: Nathan Congleton

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Menning

Ein besta rappsveit Íslands­sögunnar snýr aftur á svið

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027