Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Engin svör berast frá utanríkisráðherra

Utan­ríkis­ráðherra svarar engu um viðbrögð við morðum Ísraels­hers á fimm blaða­mönnum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Ekki bofs heyr­ist frá utan­rík­is­ráð­herra Íslands Mynd: Víkingur

Algjör þögn ríkir hjá Þorgerði Katrínu Gunnars­dóttur en Mannlíf hefur sóst eftir viðbrögðum frá utan­ríkis­ráðherranum í kjölfar drápa Ísraels­hers á 20 óbreyttum borgurum, þar af fimm blaða­mönnum, á Nasser-spítala á Gaza á dögunum.

Árásin hefur verið fordæmd um allan heim en hún virtist hafa verið gerð gagngert til þess að drepa blaða­mennina en fjórum eldflaugum var skotið á utan­áliggjandi stigagang sjúkra­hússins, þar sem blaðamenn voru vanir að safnast saman á þar sem WiFi-sambandið var hvar best. Ísraelsher sprengdi fyrst blaða­mennina og biðu svo þar til heilbrigðis­starfsmenn og aðrir reyndu að koma þeim til bjargar, og gerðu þrjár árásir til viðbótar en alls voru 20 manns drepnir í árásunum.

Pressan hefur aukist á íslensk yfirvöld um almennileg viðbrögð vegna þjóðar­morðsins undan­farið en þann 6. september verður haldinn fjölda­fundur á Austur­velli þar sem ríkis­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur er hvött til þess að hætta því að vera meðsek þjóðar­morðinu með aðgerðar­leysi sínu.

Mannlíf sendi spurningar á utan­ríkis­ráðherrann fyrir þremur dögum síðan þar sem spurt var hvort Þorgerður Katrín hyggðist bregðast við hinni skelfi­legu árás á blaða­mennina og hin 15 fórnar­lömbin og þá hvernig, ef svarið væri já. Þá spurði Mannlíf einnig hvort hún hefði fundið fyrir þrýstingi frá bandarískum yfir­völdum um að passa orð sín og gjörðir gagnvart Ísrael.

Strax sama dag svaraði upplýsinga­fulltrúi utan­ríkis­ráðuneytisins, Ægir Þór Eysteinsson þar sem hann þakkaði fyrir spurningarnar og sagðist verða í bandi. Síðan þá hefur Mannlífi ekki enn borist svar frá Þorgerði Katrínu, þrátt fyrir tvær ítrekanir.

Uppfært:

Upplýsinga­fulltrúi utan­ríkis­ráðuneytisins gerir alvarlega athuga­semdir við þessa frétt í símtali við blaðamann. Segir hann svar sé væntanlegt en að mikið sé að gera hjá ráðuneytinu. Benti hann á að þann 21. ágúst hafi RÚV sagt frá því að utan­ríkis­ráðherra Íslands væri að íhuga refsiaðgerðir gegn Ísrael. Þetta sýni að Þorgerði Katrínu sé ekki sama um það sem er að gerast í Palestínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning