Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Dómi Landsréttar að vænta í máli skotmannsins á Héraði – Ágreiningur um frásögn lögreglunnar

Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunnarsson.
Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunn­ars­son. Mynd: Gunnar Gunnarsson.

Vænta má dóms Landsdóms í skotárásar­málinu á Egils­stöðum, eftir tvær vikur en málið var flutt fyrir dómnum í vikunni.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að hinn ákærði, Árnmar Guðmundsson hafi skotið málinu til Landsdóms síðastliðið vor eftir að hafa verið dæmdur í átta ára fangelsi af Héraðs­dómi Austur­lands. Var hann sakfelldur af helstu ákæru­atriðum, meðal annars tveimur tilraunum til manndráps. Neitaði hann því bæði fyrir Héraðs­dómi og Landsdómi.

Skot­árásin gerðist að kvöldi 26. ágúst í fyrra. Dæmdi Hérað­dómur Árnmar fyrir að hafa ógnað þáverandi sambýlis­konu sinni með skamm­byssu á heimili þeirra í Fellabæ. Eftir það keyrði hann yfir í Egils­staði að húsi barns­föður sambýlis­konunnar þar sem hann réðist inn í húsið með hlaðið skotvopn. Árnmar sagði fyrir rétti hafa ætlað að hræða manninn sem reyndist ekki heima. Synir hans tveir voru það hins vegar en þeim tókst að sleppa út en Árnmar skaut tvisvar sinnum úr byssu sinni í húsinu. Lögreglan mætti á svæðið fljótlega og varð um klukku­tíma umsátur við húsið þar til Árnmar kom í dyragætt hússins og skiptist á skotum við lögregluna allt þar til lögreglan hæfði hann í kviðinn. Var hann fluttur með flýti með flugi á bráða­móttökuna í Reykjavík þar sem tókst að bjarga lífi hans.

Fram kemur í fréttum Frétta­blaðsins og Mbl.is af réttar­höldum vikunnar að engin ný gögn hafi verið lögð fram í Lands­rétti. Á miðvikudaginn voru spilaðar upptöku af vitna­leiðslu fyrir héraði en málið var flutt munnlega í gær af ákæru­valdi og verjanda.

Helsti ágrein­ingurinn snýr að frásögn lögreglu­mannsins sem skaut Árnmar, líkt og í héraði en tækni­skýrslur lögreglunnar sýndu að hann hefði staðið á öðrum stað en hann hefði talið sig hafa staðið. Í greinar­gerð hljóð­sérfræðings bendir einnig til þess að sú stað­hæfing að Árnmar hafi skotið fyrst eigi ekki við rök að styðjast, heldur hafi þeir skotið á sömu milli­sekúndunni. Árnmar hefur haldið því fram að hann hafi alls ekki ætlað sér að hæfa lögregluna, heldur hafi hann ætlað að láta hana skjóta sig.

Ákæru­valdið sagði í gær að það teldi 8-10 ár vera hæfilegan dóm fyrir slíkan verknað en verjandi Árnmars benti þó á að hann hefði sýnt mikla iðrun og að hann hefði verið fluttur yfir á Kvía­bryggju eftir að hafa sýnt af sér fyrirmyndar­hegðun í fangelsinu á Hólms­heiði.

Austur­frétt spurði skrif­stofu Lands­réttar um það hvenær megi vænta niður­stöðu í dómnum. Svarið var það að dómur skuli liggja fyrir eins fljótt og hægt er eftir aðal­meðferð en þó ekki seinna en fjórum vikum eftir hana. Ef ekki þurfi jafnvel að endurtaka hluta málflutningsins. Síðasta dóms­uppkvaðning Lands­réttar á árinu verður eftir tvær vikur og má því búast við því að dæmt verði í málinu í síðasta lagi 16. desember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp