Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Arnar Grant ber sig vel: „Já, líkaminn talar til mín“

Arnar Grant
Arnar Grant

Einka­þjálfarinn Arnar Grant, sem síðustu misseri hefur meira verið í sviðs­ljósinu fyrir  meinta  fjárhúgunartilraun og storma­samt ástar­samband við Vítalíu Lazarevu, hefur sett sér það markmið að vera eldhress og heill á sál og líkama þegar hann nær áttræðis­aldri.

Þeir Þórður Már Jóhannesson, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson kærðu þau Arnar og Vítalíu fyrir tilraun til fjár­dráttar, hótanir og brot á friðhelgi einka­lífsins. Þremenningarnir saka þau um að hafa reynt að kúga út úr þeim 150 milljónir króna, gegn því að Vítalía félli frá því að kæra þá fyrir meint kynferðis­brot.

Sjá einnig: Arnar Grant segir marga leita til sín og biðja um ráð: „Förum vel með okkur“

Vítalía steig fram í janúar síðastliðnum þar sem hún lýsti því að mennirnir þrír hefðu brotið á henni kynferðis­lega í sumar­bústaðar­ferð í desember árið 2020. Þar var hún stödd ásamt Arnari Grant, en þau áttu þá í ástar­sambandi. Arnar hefur fullyrt opinberla að hann stæði með Vítalíu í málinu og myndi bera vitni ef til þess kæmi að málið færi fyrir dómstóla.

Arnar segir að það geti reynst mörgum erfitt verkefni að bæta heilsu sína og líkams­ástand. Hann segir að fyrstu hugsunin hjá Íslendingum sé iðulega að kaupa sér kort í ræktina.

„En hver eru markmiðin og hvað viltu fá út úr þessu „verkefni“? Stóra markmiðið mitt er að vera eldhress 80 ára og heill á sál og líkama. Síðan er ég með smærri markmið sem fara eftir því hvort ég vilji þyngjast, grennast, auka vöðva­massa eða auka þol. Það fer yfirleitt eftir hvernig mér líður og líkaminn minn segir mér til. Já, líkaminn talar til mín. Við eigum að hlusta á líkamann okkar – við eigum bara einn,“ segir Arnar í færslu á Facebook og heldur áfram: 

„Áður en við ákveðum hvaða aðferð við notum til að viðhalda okkur þurfum við að setja okkur markmið. Að kaupa sér kort í ræktina er ekkert endilega besta aðferðin að settu markmiði. Jú til að auka vöðva­massa, klárlega. En annað gætir þú auðveldlega gert heima eða úti í nátt­úrunni og sparað þér fjár­útlátin. Ágæt byrjun er að leita ráða hjá einka­þjálfara eða öðrum fagaðila. Á endanum gæti það sparað þér sporin og meira til..“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning