Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

Hún hafi samþykkt að hitta hann til að eiga það sem hún taldi að yrði „kurteislegt samtal“

Kona frá Kentucky í Banda­ríkjunum, sem segist vera konan sem sést verða fyrir grófu líkamlegu ofbeldi á eftirlits­myndbandi sem hefur vakið mikla athygli á netinu undan­farna daga, hefur fengið dóms­úrskurð um nálgunar­bann gegn manninum sem hún sakar um árásina. Þetta kemur fram í dómskjölum sem TMZ hefur undir höndum.

Samkvæmt gögnunum hefur Nathan Seale verið gert að halda sig í að minnsta kosti 150 metra fjarlægð frá Amber Marie Mitchell og er honum jafnframt bannað að hringja í hana, senda henni skilaboð eða hafa við hana samband með nokkrum öðrum hætti.

Mynd­bandið, sem sýnir meint samskipti parsins, sýnir karl og konu sitjandi við borð þegar maðurinn skyndi­lega grípur drykk og hendir honum framan í konuna í miðju samtali. Konan rís á fætur en maðurinn hrindir henni þá í gólfið og sparkar síðan í hana þegar hún reynir að standa upp. Því næst grípur hann tösku af borðinu, sem virðist tilheyra konunni, og þegar hún gengur í átt til hans tekur hann hana kverka­taki og hendir henni aftur í gólfið áður en hann yfirgefur staðinn.

Í beiðni sinni um nálgunar­bann lýsir Mitchell atburðarás sem er nánast samhljóða því sem sést á mynd­bandinu. Hún segir að samskipti þeirra hafi ekki verið góð áður en meint árás átti sér stað. Að hennar sögn hafði hún átt í stuttu sambandi við Seale, sem hafi sýnt af sér munnlegt ofbeldi í skila­boðum eftir sambands­slitin. Hún hafi samþykkt að hitta hann til að eiga það sem hún taldi að yrði „kurteislegt samtal“ um samband þeirra en þá hafi hann ráðist á hana með fyrr­greindum hætti.

Samkvæmt frétta­veitunni WLKY hefur Seale verið ákærður fyrir alvarlega líkams­árás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár