Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Rakel Jóhannsdóttir er amma á strandveiðum: „Nei, ég er ekkert eldklár á þessu öllu“

Rakel Jóhannsdóttir
Rakel Jóhanns­dóttir

„Fyrst þegar ég kom hérna var þetta mjög skrýtið. Ég var mjög nervös, hrædd og skelkuð. Algjör­lega. Ég keyrði á bryggjuna, bakkaði á og ég gerði allan fjárann. Og þeir stóðu og horfðu á, litu undan og flissuðu en þeir eru að mestu hættir því núna þannig að þeir taka mér mjög vel,“ segir Rakel Jóhanns­dóttir, sjómaður á Norður­firði, í viðtali við Reyni Traustason, þegar hún er spurð hvernig karlarnir, hinir sjómennirnir, taki henni; þetta sé harðsvírað samfélag trillu­karla eða strand­veiðimanna.

Rakel, sem ólst upp á Hólmavík, er dóttir skip­stjóra. Útgerðar­manns. Faðir hennar hét Jóhann Guðmundsson.

Þannig að þarna kemur þetta beint í æð.

„Já,“ segir Rakel sem segir að hún hafi verið mikið á sjó með föður sínum á rækju, grásleppu og hrefnu­veiðum.

Hvað kom til að hún fór svo sjálf á sjóinn?

„Það var árið 2014 að ég stóð upp úr skrifstofu­starfi sem var búið að vera mjög krefjandi og bróðir minn, Gunnar, bað mig um að vera kokkkur í einn túr á rannsóknar­báti í rækju­leiðangri. Ég fór með viku fyrirvara, kokkaði ofan í 15 manns og fannst þetta algjört frelsi og geggjað.“

Gekk bara vel að kokka?

„Mjög vel.“

Varstu ekkert sjóveik?

„Nei, ég hef aldrei verið sjóveik.

Í jan­úar 2017 seldi annar bróðir Rakelar bát og hún keypti hann. Og tók punga­próf.

Það hélt áfram og ég var hjá honum; fór að veiða rækju og fleira með honum alveg fram til áramóta 2016. Þá var ég fimmtug. Þá var ég beðin um að koma sem háseti á Árna Friðriksson.“ Tíminn leið og í janúar 2017 seldi annar bróðir Rakelar bát og hún keypti hann. Og tók pungapróf.

Rakel er gift, á tvo uppkomna syni og þrjú barnabörn.

Hvernig tók eigin­maðurinn því að hún ætlaði að kaupa bát?

„Svona bæði og. Ekkert rosalega vel. Ég eyddi sparifénu okkar í þetta en ég er búin að borga það til baka.“

Rakel segist hafa lent í allra handana veseni. Sjókælirinn fór. Og vélin fór. Rakel er spurð hvort hún sé eldklár á þessu öllu; fólk þurfi að hafa svolitla þekkingu á vél og búnaði.

„Nei, ég er ekkert eldklár á þessu öllu. Ég á son sem er lærður skip­stjórnar­maður og hann hefur hjálpað mér.“

Þú ert á sjó og það bilar kælir. Hvernig sérðu það?

„Vélin byrjar að hita sig og þú ferð ekkert af stað. Þá er bara að hringja og spyrja hvað ég eigi að gera. Og þá bið ég um drátt í land.

Þessi tjón urðu á þessum fyrstu árum, 2017 og 2018. Svo 2019 var allt komið í lag og búið að vera í lagi síðan.“

Báturinn heitir Bogga.

„Mamma var kölluð Bogga.“

Líka í bókhaldi

Rakel var nýkomin í land á Norður­firði þegar viðtalið var tekið. Hvernig tekur hún ákvarðanir um hvert hún fer?

„Ég elti bara hina. Ég fer alltaf síðust.“

Það er alltaf einhver sem rambar á fisk.

„Já. Ég fer ekkert mjög langt því þetta er nátt­úrlega bara dugga.“

Hvað gengur hann?

„Sjö og hálfa mílu.“

Hann fer ekki hratt.

„Nei, hann fer ekki hratt.“

Rakel, sem vinnur líka við bókhald, segist aldrei hafa verið fulla vertíð.

„Ég byrjaði um miðjan júní og síðan er ég í hinni vinnunni; ég þarf að fara alveg í hana í viku til 10 daga um hver mánaðamót. Ég reikna laun fyrir mörg fyrirtæki og þarf að sinna því.“

En ég hef alveg haft milljón umfram; í hreinar tekjur.

Rakel er spurð hvað svona vertíð eins og núna gefi; getur hún fiskað fyrir verði bátsins?

„Ég hef nú ekki gert það á einni vertíð. En ég hef alveg haft milljón umfram; í hreinar tekjur.“

Himneskt.

Rakel hafði verið launa­maður og húsmóðir áður em hún fór á sjónn á sínum tíma. Sá hún fyrir sér að hún færi í þetta?

„Nei, ég skil ekki alveg af hverju ég gerði þetta en mér finnst þetta ótrúlega gaman. Þessu fylgir ótrúlegt frelsi eftir að hafa setið á skrif­stofu allan daginn, allan veturinn, og þá er þetta bara himneskt.“

Þú bíður bara eftir næstu vertíð.

„Já.“

Þetta er aðallega þorskurinn. Og svolítið af ýsu. Ufsa.

Maður þarf að vera svo­lítið sterkur.

Rakel er spurð hvort þetta sé eitthvað sem hún ráðleggi öðrum konum að gera; að fara á sjóinn.

„Já, ef þær treysta sér til þess.“

Hún segir líka: „Maður þarf að vera svolítið sterkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið