Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dæmdur fyrir morðið á ungri eiginkonu sinni – „Er hún ekki falleg?“

Klapparstígur 11
Klapp­ar­stígur 11

Að kvöldi sunnu­dagsins 10. janúar 1988 hringdi Bragi Ólafsson í lögregluna í Reykjavík og bað hana að koma á heimili sitt að Klappar­stíg 11. Í samtali við lögreglu taldi Bragi að eiginkona sín, Gréta Birgis­dóttir, hefði hengt sig. Þegar lögregla kom á vettvang sagði hann þau hafa drukkið mikið dagana á undan sem varð til þess að hann hafi sofnað ölvunar­svefni. Þegar hann vaknaði hafi hann séð Grétu hanga í „kaðalspottum í svefn­herbergis­dyrunum“, sem hann leysti hana úr og lagði á gólfið. Bragi endurtók í sífellu að Gréta hafi haft orð á því að hún ætlaði að fyrirfara sér. Bragi Ólafsson var hand­tekinn á staðnum og úrskurðaður í gæslu­varðhald.

Í dómi sakadóms Reykja­víkur, í júní 1988, kemur fram að skýringar Braga hafi ekki verið teknar trúanlegar. Bragi hafi verið mjög ölvaður þegar lögregla kom á vettvang og frásögn hans óljós. Í fyrstu var fram­burður Braga sá að hann hafi fundið eiginkonu sína hangandi í böndum. Tveimur dögum síðar sagði hann Grétu hafa skvett á sig vatni og sagst ætla að kasta sér fram af svölunum þar sem þau bjuggu. Tíu dögum síðar breyttist fram­burður Braga aftur þegar hann sagði við yfirheyrslu hjá lögreglu að átök hefðu orðið með þeim um nóttina. Sagði hann Grétu hafa ráðist á sig sem endaði með því að hann hafi gripið böndin, snúið þeim um háls hennar og höfuð svo að hertist. Sagðist hann síðan hafa sofnað. Frammi fyrir sakadómi Reykja­víkur 3. febrúar lýsti Bragi því loks yfir að hann axli ábyrgð á láti eiginkonu sinnar, en bætti því svo við að hún hafi samt stytt sér aldur, því að hann hafi einungis vafið böndunum um höfuð hennar og háls og skilið hana eftir á þann hátt. Bragi Ólafsson varð að lokum dæmdur í átta ára fangelsi og þótti sannað að ákærði hefði „gerst brotlegur við 211. grein almennra hegningar­laga“, en sá dómur var þyngdur um tvö ár í Hæstarétti í apríl árið 1989.

Tæpum tíu árum síðar tók Gerður Kristný viðtal við Braga sem þá var laus úr fangelsi. Bragi hélt sig fast við sjálfsvígs­frásögnina. Þar sagðist hann hafa kynnst Grétu þegar hún var aðeins 17 ára gömul en sjálfur var hann þá 42 ára. Hann sagðist hafa komið henni til bjargar þar sem hann sá þrjá menn abbast upp á hana í miðbænum og samband þeirra hafi þróast frá og með þeim degi. Undir lok viðtalsins kemur fram að Bragi hafði mynd af Grétu við rúmið sitt í hjarta­laga ramma. „Ég býð henni góðan daginn á hverjum morgni og góða nótt á kvöldin,“ sagði Bragi í viðtalinu. Hann skoðaði myndina alvarlegur á svip, leit svo upp og spurði: „Er hún ekki falleg?“.

Heimildir: „Ég veit hvað höfuð þitt vó en þekki ekki síðustu hugsunina“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning