Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Níu ákærðir í sögulegu Straumsvíkurmáli

Þrír Íslendingar eru meðal þeirra

Kókaín
Kókaín

Níu karlmenn hafa verið ákærðir í Straums­víkurmálinu svokallaða, sex erlendir ríkis­borgarar og þrír Íslendingar. Málið snýst um innflutning á 106,2 kílóum af kókaíni sem falin voru í sjókistu flutninga­skipsins Koznitza en um er að ræða stærsta kókaín­smygl í sögu Íslands.

RÚV greindi frá.

Vasile Costache, Arthur De Araujo Faria, Corneliu Radulescu, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva eru ákærðir fyrir skipulagða brota­starfsemi og stórfellt fíkniefna­lagabrot. Samkvæmt ákæru voru efnin ætluð til sölu­dreifingar hér á landi en lögregla fjarlægði þau úr skipinu og kom gervi­efnum fyrir í staðinn.

Mennirnir eru sagðir hafa notað köfunar­búnað til að sækja gervi­efnin úr skipinu í Straumsvík aðfara­nótt 24. júní. Hluti þeirra var síðar fluttur til Kópavogs.

Íslendingarnir Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson eru ákærðir fyrir að hafa tekið við um 30 kílóum af gervi­efnunum. Atli Freyr Fjölnisson er sakaður um að hafa gefið þeim fyrirmæli um móttökuna í gegnum samskipta­forritið Signal.

Sjötti erlendi maðurinn er einnig ákærður fyrir hlutdeild í brotinu með því að hafa flutt köfunar­búning frá Ítalíu.

Ákæru­valdið krefst jafnframt upptöku fíkniefna, skotvopns, skotfæra, farsíma, bifreiðar og köfunar­búnaðar. Farið hefur verið fram á áfram­haldandi gæslu­varðhald yfir mönnunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning