Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Einkaviðtal við handritshöfund frá Hollywood um verkfallið: „Fólk hefur misst heimili sín“

Azie Dungey (vinstra megin) í Black Live Matters kröfugöngu í Ástralíu.
Azie Dungey (vinstra megin) í Black Live Matters kröfu­göngu í Ástralíu. Mynd: Instagram-skjáskot

Handrits­höfundar í Hollywood hafa verið í verkfalli frá 2. mars á þessu ári og lítið virðist þokast í samnings­viðræðum. Leikarar í Hollywood fóru svo í verkfall í júlí og hefur harkan í verk­föllunum stig­magnast síðan. Mannlíf ræddi við handrits­höfundinn Azie Dungey í einka­viðtali.

Azie Dungey

Íslands­vinurinn Azie Dungey er handrits­höfundur og leikkona í Hollywood en hún var meðal annars í handrita­teyminu sem skrifaði hinn geysivinsæla gamanþátt Unbreakable Kimmy Schmidt en einnig kom hún meðal annars að handrita­gerð við þættina Ask a Slave, Harlem, Girls5Eva og Sweetbitter. Azie hefur hlotið tilnefningar fyrir handrita­skrif sín en hún hefur meðal annars unnið með Hollywood-kanónum á borð við Tinu Fey og Amy Poehler.

Azie ræddi við blaðamann Mannlífs um verk­föllin og stemmningunni meðal verkfalls­fólks. Hún flutti nýlega til Ástralíu en gaf sér tíma til að spjalla.

„Samningar okkar handrits­höfunda við AMPTP (Félag fram­leiðenda sjónvarps­þátta og kvikmynda) rann út og samninga­viðræður hófust. Í þeim viðræðum kom í ljós að AMPTP vildi ekki ganga að kröfum okkar. Helsta deilu­efnið snýr að þeirri staðreynd að streymis­veiturnar borga okkur ekki fyrir streymin. Áður var það þannig að ef að þáttur sló í gegn, borguðu sjónvarps­stöðvarnar okkur aukalega þegar þættirnir voru endur­sýndir, seldir áfram til annarra sjónvarps­stöðva og þegar þeim var dreift með öðrum hætti, til dæmis þegar þeir voru settir á DVD eða myndbands­spólur. Ef að þátturinn gaf pening, þá fengum við pening í kjölfarið. En streymis­veitur hafa þetta ekki svona. Þannig að handrits­höfundar eru ekki að fá greitt það sem þeir eiga skilið. Efnið er að skapa milljarða dollara gróða fyrir streymis­veiturnar en við fáum ekki hluta af þeim gróða.“

Azie Dungey í kröfu­göngu.

Azie sagði að deilurnar snérust einnig um fleira. „Önnur deilumál snúa að því að stúdíóin vilji nota gervi­greind til að skrifa eða endur­skrifa og vandamál varðandi stærð skrifstofu­rýmis, og það að lágmarks­vikulaunin héldu ekki í við kaup­máttinn og fleira.“

En bjóst Azie við að verk­fallið drægist svona á langinn, að það væri enn í gangi í september?

„Þetta er fyrsta verk­fallið mitt þannig að ég vissi ekki hverju ég mátti búast við. Ég veit að lengsta verkfall WGA (Félag handrits­höfunda) varði í 154 daga en það var árið 1988. Ég vonaði sannarlega að verk­fallið yrði styttra en það er orðið.“

Hvernig er stemmningin meðal handrits­höfunda?

„Ég held að andinn sé bara góður hjá fólki því við vitum að við erum að gera hið rétta. Það sem við berjumst fyrir er algjör­lega nauðsynlegt svo við getum lifað af. Og þetta er rúmlega sann­gjarnt. Sumir yfirmenn í Hollywood hafa meira að segja viðurkennt nafnlaust, að kröfur okkar séu meira en sann­gjarnar. Og þeir hafa tapað meira en hundruðum milljóna dollara meira en það sem það hefði kostað þá að semja við okkur.“

Azie segir að þó að andinn sé góður hjá handrits­höfundar hafi margir þeirra átt afar erfitt í verk­fallinu.

„Handrits­höfundar hafa orðið fyrir miklu höggi, bæði persónu­lega og fjárhags­lega. Fólk hefur misst heimili sín og sumir minna þekktir höfundar sofa í bílum sínum. Vegna þessa erum við mjög döpur og þetta hefur haft gríðarleg áhrif á aðra starfs­menn sem starfa við þátta- og kvik­myndagerð, þó þeir séu í öðrum stéttar­félögum.“

En hefur Azie fundið fyrir stuðningi frá leikurum Hollywood?

„Já. Þeir eru líka komnir í verkfall þannig að við erum í sömu mótmæla­göngunum. En jafnvel áður en þeir fóru í verkfall mættu þeir þegar þeir gátur og sýndu mikinn stuðning.“

En hvað hefur Azie tekið sér fyrir hendur í verk­fallinu?

„Ég fór daglega í mótmæla­göngur til að byrja með. En persónu­lega finnst mér erfitt að hafa efni á að búa í Los Angeles. Og ég hef verið að spá í að flytja um nokkurt skeið. Þannig að ég seldi öll húsgögnin mín og flest fötin mín og fór. Í augna­blikinu bý ég í Ástralíu í lítilli borg á Norður­svæðinu.“

Aðspurð hvort hún sé bjartsýn á fram­tíðina þegar snýr að atvinnu, segist Azie ekki vera viss.

„Þeir geta ekki gert sjónvarps­þætti eða kvik­myndir án handrits­höfunda. Ég veit ekki hvernig lands­lagið mun verða þegar við snúum aftur því stúdíóin hafa tapa svo miklum fjármunum á verk­fallinu. Mig grunar sterklega að við munum vinna mikið til í fjarvinnu, því það sparar pening sem færi annars í skrifstofu­leigur. Þannig að það er gott því ég bý í öðru landi. En annars er þetta allt svolítið í lausu lofti. Ég held að það hafi verið gott fyrir okkur öll að endurmeta líf okkar, hvað vinnan þýðir fyrir okkur og hvert verðmæti okkar er fyrir atvinnu­grein sem hagnast stjarnfræði­legan af vinnu okkar.“

En hvernig heldur Azie að verk­fallinu ljúki?

„Eins og kröfu­spjaldið sagði: „Höskuldar­viðvörun: Við vinnum.“

Azie hefur eitt að segja að lokum:

„Ég elska Ísland. Ég hef komið þangað þrisvar sinnum. Í augna­blikinu er mjög heitt hér í Ástralíu en ég myndi alveg þiggja kalda íslenska golu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár