Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Elísabet segir fleiri þolendur hafa stigið fram: „Þessar stelpur voru á aldrinum sextán til nítján“

Elísabet Ormslev
Elísabet Ormslev

Sex konur til viðbótar hafa bæst við í þolendahóp kvenna sem kvarta undan samskiptum sínum við Pétur Örn Guðmundsson söngvara. Elísabet Ormslev söngkona sagði frá þessu í viðtali við Eddu Falak í hlaðvarps­þætti hennar Eigin konur.

Sjá einnig: Elísabet Ormslev var í eitruðu sambandi við eldri mann: „Ætlarðu ekki örugglega í fóstur­eyðingu?“

Fyrir helgi steig Elísabet fram í Frétta­blaðinu og sagði frá eitruðu sambandi sem hún átti í með Pétri en sambandið hófst þegar hún var aðeins 16 ára og hann rétt undir fertugu. Segir hún í hlaðvarps­þættinum að sex konur hafi haft samband við hana eftir að hún steig fram, með sögur af samskiptum sínum við Pétur en þær voru allar sextán til nítján ára þegar sögurnar áttu sér stað. Fullyrðir Elísabet að dæmin séu mun fleiri.

„Eftir að ég póstaði þessu hef ég fengið alveg sex sögur [frá stelpum sem hafa verið með honum], sem hafa lent í honum líka. Allar þær, og ég veit að það eru fullt af öðrum. Allar þessar stelpur voru á aldrinum sextán til nítján ára þegar hlutirnir áttu sér stað. Hann var nafn­greindur á Twitter, ekki af mér heldur öðrum, og þá byrjaði allt að hrúgast inn,“ segir Elísabet.

Hún hélt áfram, „þetta var basically: „Hey ég líka.“ Ég hef heyrt fleiri sögur […] sem hafa líka lent í því að hann hefur verið ógeðslega ágengur við þær, náði þeim ekki en var stans­laust að áreita.“

Hún segir Eddu frá því að hann geti verið mjög sjarmerandi en að hann eigi sér mjög myrka hlið.

„Ein sem ég heyrði af sem var nítján ára, sem hann lét bara ekki í friði. Málið er að hann er svo bullandi sjarmerandi, hann getur verið svo sjarmerandi og sett upp svo mikið „nice guy act“ og það halda allir að hann sé bara mest næs gaur í heimi. Hann getur líka verið mjög fyndinn, þannig hann er bara svolítið trúðurinn á svæðinu sem öllum finnst fyndinn og næs, en svo á hann þessa ótrúlega myrku hlið á bak við grímuna sem enginn veit nema þú þekkir hann svona eins og ég þekki hann.“

Sjá einnig: Hver er Pétur „Jesú“? – Tónlistar­maðurinn sem er sagður hafa átt í sambandi við 16 ára stelpu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá