Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Ingveldur er allt annað en sátt við stöðu mála

Alþingi Íslands
Alþingi Íslands Mynd: Víkingur

Ingveldur Anna Sigurðar­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, gagnrýndi skatta­stefnu ríkis­stjórnarinnar harðlega undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Beindi hún sjónum sérstak­lega að fyrir­hugaðri gjaldtöku á ferðamenn á vinsælum ferðamanna­stöðum.

Ingveldur hóf mál sitt á að gera orðræðu Samfylkingarinnar að umtals­efni og sagði að þar væru slagorð á borð við „verkin tala“, „laga Ísland“ og „engar skatta­hækkanir“ ítrekuð. Raunin væri hins vegar önnur að hennar mati.

„Samt er verið að hækka skatta á allt launafólk í landinu og atvinnu­lífið. Er Samfylkingin að sannfæra okkur eða sjálfa sig?“ spurði Ingveldur.

Segir skattinn draga úr samkeppnishæfni

Ingveldur gagnrýndi sérstak­lega það sem hún kallaði „Bláskóga­skattinn“. Samkvæmt máli hennar stendur til að innheimta 4.500 krónur yfir háannatímann af þeim sem ekki eru með skatta­lega heimilis­festi á Íslandi þegar þeir heimsækja tiltekna áfanga­staði.

Hún sagði fyrir­hugaða gjaldtöku vera í óþökk sveitar­stjórnar­manna og íbúa í nærsamfélaginu og taldi hana geta dregið úr samkeppnis­hæfni íslenskrar ferða­þjónustu.

„Það sér hver maður nema hæstv. ráðherrar og stjórnar­liðar að þetta dæmi gengur ekki upp,“ sagði Ingveldur.

Að hennar mati gæti gjald­takan á endanum skilað ríkis­sjóði minni tekjum fremur en meiri. Ferðamenn gætu í auknum mæli valið aðra áfanga­staði ef kostnaður við Íslands­ferð hækkaði enn frekar.

„Þjóðin er komin með upp í kok“

Ingveldur sagði þetta einfalda hagfræði og hvatti ráðherra ríkis­stjórnarinnar til að falla frá áformunum. Hún lauk ræðu sinni með harðri gagnrýni á skatta­stefnu stjórn­valda og beindi orðum sínum sérstak­lega að ráðherrum Viðreisnar.

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skatta­fylliríi og ég óska eftir því að það fái glitta í smá markaðs­hyggju frá ráðherrum Viðreisnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum