Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Síminn hættir við jólaglögg vegna glæpagengja: „Kannski öruggara að fá að taka þetta seinna“

Átökin í undir­heimunum hafa orðið til þess að starfsmanna­félag Símans hefur ákveðið að fresta jóla­glöggi starfs­fólks sem átti að fara fram á morgun. Ríflega 150 starfs­menn höfðu boðað komu sína en hótanir um árásir í miðbænum um helgina hafa gengið manna á milli á samfélags­miðlum.

Sá orðrómur gengur nú fjöllunum hærra að almenningur ætti að halda sig heima um næstu helgi og forðast djamm í miðbænum. Téður orðrómur snýst um það að um helgina megi búast við hefnar­aðgerðum vegna hnífa­árásarinnar á Banka­stræti Club.

Sjá einnig: Almenningur varaður við djammi í bænum: „Þeir ætla um næstu helgi að stinga RANDOM FÓLK“

Inga María Hjartar­dóttir er í stjórn starfsmanna­félags Símans og segir hún að ástandið í undir­heimunum hafi orðið til að jóla­glöggið fari ekki fram á morgun.

„Það er í rauninni bara út af þessu ástandi sem er komið upp varðandi skemmtanalíf í miðbænum, því miður. Og auðvitað öll þessi skjáskot sem hafa verið í dreifingu á samfélags­miðlum. Það var kominn svona óhugur í starfs­mannahópinn, þannig þetta var svoldið svona okkar sameiginlega ákvörðun, bara öryggisins vegna,“ segir Inga María í samtali við Vísi:

„Við sáum okkur ekki annan kost í stöðunni en að fresta þessu fram í janúar og taka stöðuna svoldið þá. Þetta er náttúru­lega óvissan sem er að skapa hve mestan óhug hjá okkur. Þannig að okkur fannst kannski vissara að fá að fá að fresta þessu aðeins. Og þó að tilhlökkunin hafi verið mikil og stefndi í flott partý að þá var kannski öruggara að fá að taka þetta aðeins seinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning