Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vítalía kærir alla nema Loga Bergmann: „Búið að taka skýrslu af öllum í málinu, líka sakborningum“

„Það er búið að taka skýrslu af öllum í málinu, líka sakborningum,“ sagði Kolbrún Garðars­dóttir, lögmaður Vítalíu Lazarevu, í samtali við Mannlíf í morgun.

Staðfesti hún jafnframt að Vítalía hefði lagt fram kæru á hendur Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Sagði hún Vítalíu hafa farið í skýrslu­töku vegna málsins í sumar.

Aðspurð hvort eitthvað nýtt væri að frétta af málinu sagði hún svo ekki vera.

„Það er bara í rannsókn hjá lögreglunni. Það er verið að kalla eftir gögnum og ýmislegt þannig að þetta er bara eðlilegur gangur.“

Greindi Mannlíf fá því í gær að Vítalía og Arnar Grant hefðu sést saman undan­farið, meðal annars að versla í matinn.

Bæði Vítalía og Arnar voru kærð í júní fyrir tilraun til fjár­kúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Voru það þremenningarnir, Ari, Hreggviður og Þórður sem lögðu fram kæruna.

Líkt og Mannlíf rifjaði upp í gær greindi Vítalía frá því í hlaðvarps­þættinum Eigin konur í upphafi árs að hún ætlaði sér að leita réttar síns, eftir að hafa orðið fyrir meintu kynferðis­ofbeldi af hálfu þremenningana.

Í sama þætti greindi hún frá ástar­sambandi sínu við kvæntan mann, Arnar Grant, og lýsti því einnig hvernig Arnar hefði veitt fjölmiðla­manninum Loga Bergmann kynferðis­legan aðgang að henni í golfferð haustið 2021.

„Hann dregur spil úr einhverju kynlíf­sleikja­spili, sem er einhver svona mönun; eitthvað sem maður á að gera. Þá á ég bara að fara að sjúga á manninum typpið og hann að fara niður á mig.,“ sagði Vítalía um meint atvik í golf­ferðinni.

Sagðist hún hafa grátbeðið Arnar um að stoppa.

„Ég horfi í augun á honum(Arnari) og segi: Ég vil ekki meira, viltu hætta þessu. Hann sagði bara: Vítalía, þetta er allt í lagi, ég er með þér.

’’ Svo hljóðar hluti frásagnar Vítalíu úr viðtalinu en samkvæmt Arnari Grant fór Vítalía með rangt mál.

Var það í sumar þegar Arnar tjáði sig loks um málið og sagði þá meint atvik í golf­ferðinni ekki vera sann­leikanum samkvæmt. Aðspurður hvers vegna hann hafi þagað yfir þessu í hálft ár, sagði Arnar:

„Hvar átti ég að byrja til að vinda ofan af þessu? Skaðinn var skeður og ég vildi bara hlífa fjöl­skyldunni og öðrum.’’

Þá sagðist hann einfald­lega hafa verið hræddur við enn meira skítkast.

,,Ásakanirnar voru svo þungar að ég átti ekki von á að mér yrði trúað. Andrúms­loftið í samfélaginu var ekki vinveitt og ég vildi bara ekki fara í einhvern leðjuslag.“

Málið hefur vakið gríðar­lega athygli í samfélaginu frá því í upphafi árs.

Er nú staðan sú að þremenningarnir hafa kært Arnar og Vítalíu og Vítalía hefur kært þremenningana.

Þess má því geta að Vítalía hefur ekki kært Loga Bergmann fyrir meint atvik í golf­ferðinni, sem Arnar segir að ekki hafa átt sér stað.

Þá hefur Arnar greint frá því opinber­lega að hann hyggist bera vitni í máli Vítalíu, þegar þar að kemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning