Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sjálfstæðismenn vilja ekki borga: „Íbúar Fjarðabyggðar geta vel borgað máltíðir ofan í börnin sín“

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sig­urðs­son.

Í Fjarða­byggð vilja sjálfstæðis­menn að sveitar­félagið hætti að gefa börnum frían mat í skólum byggðarinnar.

Oddviti Sjálfstæðis­flokksins er Ragnar Sigurðsson, og hann segir flestar fjöl­skyldur hafa efni á því að borga máltíðir; hægt sé að hjálpa hinum með öðrum ráðum:

„Við teljum þetta einfald­lega ranga forgangs­röðun. Rekstur sveitar­félagsins er ekki sjálfbær. Við erum ekki að ná endum saman eins og staðan er núna. Og við teljum einfald­lega rangt gefið með því að halda fast við þá braut að ætla að halda áfram að vera með gjald­frjálsar skóla­máltíðir þegar við getum ekki sinnt viðhaldi mann­virkja nægjanlega vel.

Þetta var bara mjög vel leyst hér á árum áður og við viljum algjör­lega taka utan um þá sem að eiga erfitt fjárhags­lega. Við teljum einfald­lega að við getum gripið þær fjöl­skyldur. Þannig að enginn þurfi að svelta og ekkert barn þurfi að vera undan­skilið. Við erum á hæsta meðal­atvinnu­tekjusvæði landsins. Hér er fólk sem hefur það bara ansi gott. Og lang flestir íbúar Fjarða­byggðar geta vel borgað skóla­máltíðir ofan í börnin sín,“ segir Ragnar í samtali við ruv.is.

Bæjar­stjóri Fjarðar­byggðar, Jón Björn Hákonarson, telur hins vegar að meirihlutinn vilji halda máltíðunum gjald­frjálsum:

Jón Björn Hákon­ar­son bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar.

„Þetta er líka spurning um jafna aðstöðu barna. Það getur verið óháð tekjum foreldra. Við viljum að sveitar­félagið sé meira en samkeppnis­hæft í þessu efnum og samkvæmt könnuna ASÍ erum við með lægstu skóla­þjónustu á landinu. Einn liður í því eru gjald­frjálsar skóla­máltíðir til að koma til móts við fólk með börn sem er nú kannski þá fólk sem svona efnahags­ástand eins og núna þar sem vextir og annað er hækkandi kemur harðast niður á,“ sagði Jón Björn.

Á Twitter er þetta gagnrýnt af sumum. Einn segir Sjálfstæðis­menn ætla að trompa barna­hatur Margret Thatcher, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Bretlands, en margir Bretar hafa ekki enn fyrir­gefið henni að hætta bjóða börnum upp á mjólk í skólum. Annar notandi hæðist að Sjálfstæðis­mönnum og segir einfald­lega: „Frelsi (til að svelta)“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning