Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sólveig Anna sakar femínista um grófa kvenfyrirlitningu

„Ég er í vitlausu liði“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar Kosn­inga­spenna og harðar deilur Mynd: Facebook/Sólveig Anna

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, sakar fólk sem kennir sig við kven­réttindi og femínisma um grófa kven­fyrirlitningu og hræsni í sinn garð. Í opinberri færslu á samfélags­miðlum lýsir hún því yfir að hún hafi mætt hörðum persónu­árásum og kynferðis­legum svívirðingum vegna afstöðu sinnar gegn aðild Íslands að Evrópu­sambandinu.

Formaðurinn segir andstæðinga sína einblína á það eitt að hún sé í „vitlausu liði“ í stað þess að ræða málefnanleg rök hennar, sem lúta meðal annars að vörn fyrir íslenska vinnu­markaðs­módelið og kjör láglaunafólks.

„Perlufesta-kreistingar og ilmsalta-innandanir“

Sólveig Anna segist verða mikið vör við það á Facebook að sumt fólk sé í miklu uppnámi yfir því að hún skuli dirfast að berjast gegn ESB-aðild, fyrst og fremst vegna þess með hverjum hún standi í samtökum í þeirri baráttu. Hún segir fólk sem hún hafi áður þekkt tala um sig eins og „nokkurskonar Jezebel, fláráða og spillta“.

„Fólk sem að aldrei hefur sýnt baráttu Eflingar-kvenna nokkurn áhuga né stuðning eru í miklum perlu­festa-kreistingum og ilmsalta-innöndunum vegna hegðunar minnar, sem þau fá vart afborið, svo skelfileg er hún,“ skrifar Sólveig Anna.

Hún bætir því við að þessum hópi hafi í raun aldrei fundist hún í „réttu liði“, sama hvað hún hafi tekið sér fyrir hendur á undan­förnum árum.

Segir rök sín gegn ESB fara fyrir ofan garð og neðan

Í færslunni rekur Sólveig Anna helstu ástæður þess að hún leggst gegn inngöngu Íslands í Evrópu­sambandið. Hún telur að andstæðingar hennar hafi engan áhuga á að ræða þau rök. Meðal þeirra atriða sem hún nefnir eru:

  • Vörn vinnu­markaðs­módelsins: Að verja þurfi íslenska módelið sem veiti verka­fólki ríkuleg réttindi og möguleika á sameiginlegri baráttu.
  • Upptaka evru: Að sú ögun á vinnu­markaði sem boðuð sé í aðdrag­anda evru­upptöku muni fyrst og fremst bitna á verka­fólki.
  • Atvinnu­leysi og laun: Hætta á langtíma­atvinnu­leysi aukist og fókus á „samkeppnis­hæfni“ muni hafa ömurlegar afleiðingar fyrir tilveru­skilyrði verka­fólks.
  • Húsnæðis­markaðurinn: Að húsnæðis­markaður í löndum ESB sé mjög erfiður og slæmur fyrir láglaunafólk.

„Ekkert af þessum ástæðum hefur náð í gegn. Það eina sem registrerar er að ég er í vitlausu liði,“ segir hún.

Barátta Eflingar sögð „einskis virði“ í augum gagnrýnenda

Sólveig Anna listar upp langa röð kjarabóta og sigra sem hún telur Eflingu hafa náð undir sinni forystu, en segir gagn­rýnendur sína afskrifa það allt og fela sig á bak við það hvað þeim finnst hún „ömurleg gella“.

Meðal þess sem hún nefnir sem dæmi um baráttu sem sé talin „einskis virði“ í augum þessa hóps eru krónutölu­hækkanir lífs­kjara­samningsins, leið­rétting á sögulega vanmetnum kvenna­störfum hjá Reykja­víkurborg, sérstakar hækkanir fyrir ræstinga­fólk og starfs­fólk á hjúkrunar­heimilum, sem og barátta gegn launa­þjófnaði og svika-stéttar­félögum.

Sakar femínista um grófa kvenfyrirlitningu

Formaðurinn sakar fólk sem kallar sig kven­réttinda­sinna og femínista um algjöra þversögn og hræsni þegar það grípi til persónulegra og kynferðislegra svívirðinga þegar það er henni ósammála.

„Fólk sem kallar sig kven­réttinda­sinna og femínista sér allt í einu ekkert að því segja konu sem það er ósammála hafa skriðið uppí hjá hinum og þessum eða hún sé nuddandi sér utan í allskonar menn,“ segir Sólveig Anna.

Hún spyr hvort þessu fólki finnist það vera að gera það auðveldara eða öruggara fyrir konur á Íslandi að taka þátt í pólitík og aktívisma með því að kalla hana „bólfélaga auðvaldsins, sorglega druslu, auðvaldsh**u“ og þaðan af verra.

„Að reyna að þagga niður í konu með svona munn­söfnuði er skíta-kven­fyrir­litning og hluti af langri og ömurlegri hefð sem snýst um að niður­lægja og útbúa stemmningu þar sem að allt sem er sagt verður einskis virði,“ fullyrðir hún.

Sólveig Anna segir það hafa verið „smá sjokkerandi“ að sjá fólk sem hún taldi ágætis kunningja grípa til slíkra orða vegna pólitískrar skoðunar, og því hafi hana langað til að segja frá þessu. Hún lýsir því þó yfir að lokum að hún sé hress og bjartsýn og stefni á að kjósa „nei“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning