Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fagnaði 117 ára afmæli sínu með 107 ára systur sinni: „Þær lifðu af allt á síðustu öld“

Hin glæsilega afmælisterta
Hin glæsi­lega afmælisterta Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kona, sem talin er vera 117 ára gömul og þar með elsta kona heims, fagnaði afmæli sínu á dögunum með litlu systur sinni. Hún er 107 ára.

Hin brasilíska Cicera Maria dos Santos er sögð vera fædd árið 1906, sem þýðir að hún er 117 ára en hún átti afmæli á dögunum. Verði fæðinga­vottorð hennar, sem hún hefur í sínum fórum, staðfest, þýðir það að Cicera er elsta kona heims, einu ári eldri en sú sem nú er skráð sem sú elsta, Maria Branyas Morera, frá Spáni.

Senni­lega elsta kona heims

Cicera fagnaði afmæli sínu með systur sinni, hinni 107 ára Josefa Maria de Conceicao, þann 23 september, umkringd fjöl­skyldu og vinum. Veislan innihélt litríka köku, nasl og dynjandi lófaklapp gestanna.

Og hvert er leyndar­málið á bakvið langlífið? Systurnar sögðu fjöl­miðlum að leyndar­málið væri trúin á Guð og að borða skyn­samlega.

„Friður Drottins sé með okkur. Hver getur gert meira en Guð? Allt er Guð,“ sagði Cicera og systir hennar bætti við: „Þú verður að borða. Baunir, maís, kassavarót, kartöflur.“

Litla systirin Josefa.

Cicera bjó í sveit mestan hluta ævinnar. Þar seldi fjöl­skyldan kjúklinga á markaði í Paraiba, sem er fylki í norð-austur Brasilíu.

Barnabarn Josefu, Ruan, sagði að systurnar væru „komnar af fólki sem voru í raun þrælar.“ Bætti hann við: „Fyrir fimm kynslóðum síðan var fjöl­skylda mín þrælar. Þær lifðu af allt á síðustu öld og þær sigruðust á Covid,“ útskýrði hann. „Mesta hamingja heimsins er að vera með þeim hér í dag.“

Þrælahald var stundað í Brasilíu frá því um miðja 16. öld þar til það var bannað á sjöunda áratug 19. aldar.

Samkvæmt frétt Daily Mail um málið, er ekki vitað hvort Cicera og fjöl­skylda hennar ætli sér að sækjast eftir titlinum „Elsta kona heims“ hjá Heimsmetabók Guinnes.

Fæð­ing­ar­vott­orðið
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Þingmaðurinn segir þróun gervigreindar hafa verið hraðari á síðustu vikum en djörfustu spár gerðu ráð fyrir.
Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár