Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Alls voru 43 ákæru­kaflar í málinu

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir fjársvik og þjófnaði í verslunum á höfuð­borgar­svæðinu. Meðal þess sem maðurinn sveik út voru fjölmargar kjúklinga­vörur og súkkulaði, en hann notaði ódýrari strika­merki við sjálfs­afgreiðslu­kassa til að greiða aðeins brot af raun­verulegu verði varanna.

Dómur féll í Héraðs­dómi Reykja­víkur 28. september. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en alls voru 43 ákæru­kaflar í málinu. Fallið var frá einum þeirra, sem varðaði skjala­fals.

Fyrsta brotið átti sér stað í janúar 2025 þegar maðurinn sveik út Katsu kjúklinga-pokeskál sem kostaði 2.290 krónur. Hann setti strika­merki af vöru sem kostaði aðeins 45 krónur á umbúðirnar og greiddi því 45 krónur fyrir skálina.

Kjúklingur kom ítrekað við sögu næstu vikurnar. Maðurinn sveik meðal annars út Ali Rodizio kjúkling í nokkrum verslunum og voru vörurnar í einstökum tilvikum að verðmæti rúmlega 3.000 krónur. Þá sveik hann út kjúklinga­bringur og BBQ-kjúklinga­spjót. Spjótin kostuðu 7.799 krónur en maðurinn greiddi aðeins 69 krónur fyrir þau með því að nota rangt strika­merki.

Súkkulaði var einnig áberandi í brota­hrinunni. Í mars sveik maðurinn út Kinder Delice súkkulaði að verðmæti 798 krónur en greiddi 79 krónur. Hann stal einnig Kinder Maxi súkkulaði í nokkrum tilvikum og í apríl sveik hann út Ferrero súkkulaði sem kostaði 998 krónur með því að nota 79 króna strika­merki.

Listinn yfir vörurnar var þó mun lengri. Þar má meðal annars finna brauð, skyr, ost, kaffi, kartöflur, pekanhnetur, appelsínu­safa, pítusósu, egg, orku­drykki, fæðu­bótarefni og bíla­hleðslur.

Samkvæmt dóminum hafði maðurinn ekki áður gerst sekur um refsivert brot svo kunnugt væri. Hann játaði brotin, lýsti iðrun og hafði greitt bótakröfu að fjárhæð 61.202 krónur að fullu.

Dómurinn taldi níu mánaða fangelsi hæfilega refsingu með hliðsjón af fjölda brotanna og fjár­hæðunum. Fullnustu refsingarinnar var hins vegar frestað og fellur hún niður eftir tvö ár haldi maðurinn almennt skilorð.

Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega eina milljón króna í málsvarnar­þóknun verjanda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum