Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Selfoss er á barmi gjaldþrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“

Selfoss – Myndin tengist fréttinni ekki beint
Selfoss – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Sveitar­félagið Árborg er á barmi gjald­þrots samkvæmt frétt Vísis.

Í frétt Vísis segir að skuldir sveita­félagsins Árborgar hafi vaxið mikið í verð­bólgunni og að frost á fasteigna­markaði hafi komið niður á tekjum sveitar­félagsins. Þar kemur einnig fram að veltufé sé neikvætt upp á 76 þúsund krónur á hvern íbúa. Bæjar­stjóri Árborgar, Fjóla Kristins­dóttir, segir að nauðsynlegt sé að gera eitthvað í málinu en það gæti þýtt uppsagnir og eigna­sölur.

Fjóla S. Krist­ins­dóttir

Á morgun klukkan 17 á hótel Selfossi, hefur bæjar­stjórn Árborgar boðað til íbúða­fundar en þar á að ræða fjárhags­stöðu bæjarins og hún kynnt í þaula, eftir vinnu sem byggir á úttekt KPMG sem fyrir­tækið vann fyrir sveitar­félagið. Segir Fjóla fjárhags­stöðuna afar erfiða líkt og hjá um tuttugu öðrum sveitar­félögum. Segir hún að mikill vöxtur hafi verið í Árborg og mikið byggt undan­farin ár. Þá hafi verð­tryggð lán verið tekið sem hafi hækkað mjög í verð­bólgunni og vaxta­hækkunum síðustu missera. Því sé bærinn nánast í greiðslu­falli.

„Það mátti ekki mikið útaf bera til að við værum komin á þann stað að við værum í hálfgerðu greiðslu­falli,“ sagði bæjar­stjórinn í samtali við Vísi.

Segir hún að sveitar­félagið skuldi í dag um 28 milljarða króna en veltufé frá rekstri hafi verið neikvætt í nokkur ár. Nú sé það neitvætt um 76 þúsund krónur á hvern íbúa. Bendir hún þó á að veltufé sé jákvætt um 100 þúsund krónur á hvern íbúa í samanburðar­sveitar­félögum á borð við Mosfellsbæ, Akranes, Reykja­nesbæ og Akureyri sem öll hafa verið í örum vexti, líkt og Árborg.

„Einhvern veginn hefur sveitar­félagið Árborg verið í þessum vanda í mjög langan tíma,“ segir bæjar­stjórinn við Vísi.

Fjóla segir að vandræðin hafi byrjað árið 2020 er veltufé frá rekstri var um 20 þúsund krónur á hvern íbúa sveitar­félagsins. Ekki væri þó hægt að kenna Covid-faraldrinum um stöðuna, tekjulega séð.

„Við erum í raun á þessum tíma farin í innviða­fjár­festingar. Förum í leik­skóla­byggingu, íþróttahús, við förum af stað með nýja grunn­skóla. Þannig að það eru miklar fjár­festingar á síðast liðnum fjórum árum sem kannski voru orðnar uppsafnaðar að einhverju leyti. Allt verð­tryggt og í dag þegar komin er tíu prósenta verðbólga er það ekki gott,“ segir Fjóla. Skulda­hlutfallið aukist dag frá degi.

Bæjar­stjórinn segir að þrátt fyrir allt væru mikil tækifæri í stöðunni til endur­skipulagningar og hagræðingar en án þess þó að skerða þurfi þjónustu bæjarins. Reksturinn þurfi að vera sjálf­bærari, meðal annars með því að selja eignir. Segir hún að aðgerðirnar verði þó ekki sársauka­lausar. „En auðvitað erum við ekki að fara að greiða niður skuldir sveitar­félagsins með því að hagræða eingöngu í rekstri. Það þarf fleira að koma til.“

Aðspurð af frétta­manni Vísis, hvort það þýði að segja þurfi upp starfs­fólki svaraði hún því játandi. „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing sem, já, komi niður á einhverjum störfum. Því miður þá er það þannig.“

Það er Sjálfstæðis­flokkurinn sem er einn í meirihluta í Árborg eftir að flokkurinn vann hreinan meirihluta í sveitar­stjórnar­kosningunum í fyrra. Á kjör­tímabilinu á undan mynduðu Áfram Árborg, Framsókn og óháðir, Samfylkingin og Miðflokkurinn meirihluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Ríkisútvarpinu bárust 34 umsóknir um starf aðstoðardagskrárstjóra
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp