Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp á einum sjúklingi

Fimm önnur mál voru látin niður falla

Skúli Tómas Gunnlaugsson
Skúli Tómas Gunn­laugs­son Skúli Tómas við opn­un­ar­há­tíð Bryggju­húss­ins en þar á hann fjölda mál­verka Mynd: Víkingur

Héraðs­saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur hjarta­lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugs­syni vegna manndráps. Rannsókn málsins hefur staðið yfir um árabil og laut að sex tilvikum, en fimm þeirra hafa nú verið felld niður. Ákæra er hins vegar gefin út í einu máli. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánar­orsök“

Sjá einnig: Móðir Óla var sjúklingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“

Sjá einnig: Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“

Almar Möller, verjandi Skúla Tómasar, stað­festir í samtali við frétta­stofu RÚV að gefin hafi verið út ákæra í einu máli.

Skúli Tómas hefur verið til rann­sóknar hjá lögreglu og héraðs­saksóknara í um fimm ár, grunaður um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja í lífsloka­meðferðir án nægjanlegs tilefnis. Hann var á tímabili sviptur lækna­leyfi en fékk það síðar aftur og hefur starfað á Land­spítalanum undan­farin ár.

Samkvæmt upplýsingum frá Land­spítalanum var starfs­framlag hans hafnað um leið og ákæran lá fyrir.

Vonbrigði

Auk Skúla voru tveir aðrir heilbrigðis­starfsmenn til rann­sóknar, læknir og hjúkrunar­fræðingur, en mál þeirra voru felld niður.

Almar Möller segir í samtali við RÚV að ákvörðun héraðs­saksóknara sé vonbrigði. Hann eigi erfitt með að skilja ákvörðun héraðs­saksóknara um að ákæra Skúla Tómas en trúi því að máls­meðferð fyrir dómi sýni fram á að ekkert refsivert hafi átt sér stað.

Skúli Tómas er ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðis­starfsmenn. Til vara er hann ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á sömu lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto