Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sviðsettu andlát Tómasar á Ólafsfirði

Lögreglan á Norður­landi eystra greinir frá því á Facebook að rannsókn á láti Tómasar Waagfjörð fari senn að ljúka. Hún greinir frá því að í dag hafi lögreglan sviðsett aðdrag­anda andláts hans ásamt sakborningu. Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá þá fullyrðir eiginkona Tómasar að sakborningurinn hafi verið að koma sér til varnar. Sakborningur sé vinur hennar en Tómas hafi verið sá sem dró fram knífinn sem varð honum svo að bana. Allar líkur eru á því að lögreglan hafi verið að kanna hvort sú frásögn standist skoðun.

Tilkynning lögreglunnar í heild sinni

Rannsókn lögreglunnar á Norður­landi eystra á mannsláti á Ólafs­firði þann 3. október sl. miðar vel og er skýrslu­tökum að mestu lokið. Úrvinnsla gagna stendur enn yfir og er meðal annars beðið endanlegrar niður­stöðu réttar­krufningar sem og niður­staðna samanburðar­rannsókna á lífsýnum. Þá fór fram í dag svið­setning atburðarins með liðsinni sakbornings og aðstoðar tækni­deildar lögreglu. Svið­setning er rannsóknar­úrræði sem er almennt ætlað að varpa betur ljósi á þau atvik sem til rann­sóknar eru og er viðbót sem getur gefið sakborningi betra færi á að lýsa atburðum.  Svið­setning er svo borin saman við önnur rann­sóknargögn svo sem vettvangs­rannsókn, lífsýni og framburði annarra.

Eins og fram hefur komið í fréttum, krafðist Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra ekki áfram­haldandi gæslu­varðhalds yfir sakborningi vegna rann­sóknarinnar. Ákvörðunin byggir á þeim forsendum héraðs­dóms og síðar Lands­réttar að lögregla hefði ekki sýnt nægilega fram á að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 væru fyrir hendi.

Karl­maðurinn mun áfram ásamt þremur öðrum bera réttar­stöðu sakbornings í málinu á meðan rannsókn stendur yfir. Að rannsókn lokinni verður málið svo sent til ákæru­meðferðar hjá Héraðs­saksóknara

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning