Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

„Stuart Little“ lét flytja inn 32 kíló af amfetamíni til Íslands

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Víkingur

Angela Louise Derbyshire og Darren Christopher Rollisson hafa verið dæmd í sex ára fangelsi hvort um sig í Héraðs­dómi Reykjaness fyrir stórfellt fíkniefna­lagabrot. Þau voru sakfelld fyrir að hafa í félagi flutt tæplega 32 kíló af amfetamíni til Íslands frá Manchester í apríl síðastliðnum.

Fíkni­efnin voru falin í tveimur ferða­töskum sem þau höfðu meðferðis þegar þau komu til Kefla­víkur­flugvallar 12. apríl. Angela var með tösku sem innihélt rúm 14,7 kíló en í tösku Darrens voru tæp 17 kíló. Styrk­leiki efnanna mældist á bilinu 35 til 50 prósent.

Við rannsókn málsins fundust umfangs­mikil WhatsApp-samskipti í síma Darrens við mann sem gekk undir nafninu „Stuart Little“ en það er sama nafn og þekkt kvikmynda­persóna og er persónan mús. Stuart Little kom þannig með beinum hætti að undir­búningi ferðarinnar.

Darren viðurkenndi fyrir dómi þátttöku sína og sagði Stuart Little hafa boðið honum að flytja það sem hann taldi vera kannabis til Íslands. Hann sagði Angelu hafa samþykkt að taka þátt gegn greiðslu. Angela neitaði hins vegar sök og hélt því fram að hún hefði talið ferðina vera frí og að samskipti þeirra um greiðslur hefðu tengst viðhalds­vinnu.

Dómurinn féllst ekki á þá skýringu og taldi sannað að Stuart Little hefði skipulagt og greitt Íslands­ferð þeirra. Jafnframt var talið hafið yfir skyn­samlegan vafa að bæði hefðu haft ásetning til að flytja fíkniefni til landsins og unnið saman að framkvæmd brotsins.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess gríðar­lega magns amfetamíns sem flutt var inn og þess að efnin voru ætluð til sölu­dreifingar. Þótt þau hefðu gegnt hlutverki burðar­dýra taldi dómurinn að innflutningurinn hefði ekki getað orðið að veruleika án aðkomu þeirra. Þau voru því dæmd í sex ára fangelsi hvor

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum